Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1983, Blaðsíða 182
186
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Pjóðminjasafni skuli skipt í deildir, stjórn safnsins skuli í höndum deild-
arstjóra og þjóðminjavarðar sameiginlega og ýmislegt er fastar skipað
um mál er snerta byggðasöfnin og greiðslur ríkisstyrks til þeirra, mis-
munandi eftir stærð safnanna og legu. Þá er gert ráð fyrir landsminja-
vörðum, sem skuli launaðir af ríkisfé og verði eins konar fulltrúar
þjóðminjavörzlunnar úti um landið, hver á sínu svæði og hafi jafnframt
umsjá með byggðasöfnum.
Vonazt var til, að lagafrumvarpið gæti orðið lagt fyrir Alþingi það,
er nú situr.
Húsafriðunarnefnd.
Húsafriðunarnefnd var skipuð að nýju sömu mönnum og síðast
höfðu verið, nema hvað Gylfi Guðjónsson arkitekt var skipaður í stað
Ingvars Gíslasonar. Nefndin hélt 9 fundi á árinu um fjölmörg mál, sem
snertu byggingavernd, friðanir húsa og úthlutun úr Húsafriðunarsjóði.
Kennaraskólinn gamli við Laufásveg var friðlýstur á árinu.
Nefndin stóð fyrir uppmælingu Józka hússins við Hafnarstræti, sem
Júlíana Gottskálksdóttir nemandi í húsagerðarlist annaðist, einnig stóð
nefndin að uppmælingu Harðar Ágústssonar á Miðdalskirkju auk ýmis-
legra annarra verkefna á sviði húsaskráningar.
Þá hófu þau Hörður Ágústsson og Lilja Árnadóttir að gera ýtarlega
skrá yfir kirkjur á landinu með tilliti til húsanna sem slíkra.
Úr Húsafriðunarsjóði, sem var alls að upphæð sem næst kr. 1.300
þús. á árinu, og hlutu eftirtalin verkefni styrki:
Torfusamtökin vegna bakarísins gamla kr. 75 þús.
Gömlu húsin í Neðstakaupstað kr. 75 þús.
Innri-Njarðvíkurkirkja kr. 60 þús.
Langabúð á Djúpavogi kr. 50 þús.
Randúlfshús á Eskifirði kr. 50 þús.
Norska húsið í Stykkishólmi kr. 50 þús.
„Húsið“ á Eyrarbakka kr. 50 þús.
„Elverhoj" og „Garvarí“ á Seyðisfirði kr. 50 þús.
Búðarstígur 10 á Eyrarbakka kr. 35 þús.
Suðurgata 8, Reykjavík kr. 35 þús.
Garðastræti 11 A, Reykjavík kr. 25 þús.
Félagshús, Flatey kr. 25 þús.
Vorsalir, Flatey kr. 25 þús.
Kirkjubæjarkirkja í Hróarstungu kr. 25 þús
Til ofantöku hússins í Vogi á Mýrum kr. 25 þús