Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1983, Blaðsíða 52
56
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Lýsing á jarðlagaskipan (3. mynd, Torfmýri A; dálkar 2 og 4):
Dýpi sm: 49,0-52,0 Jarðvegsgerð: Grábrún mold Samsetning. (Ag+Ga)2,Sh2,Lfe+,Th+,Dg+ Auðkenni gjósku:
52,0-54,5 54,5-56,6 Svartur flnn sandur Grábrún mold Ag4 (Ag+Ga)2, Sh2, Lfe+, Th+, Dg+ tTl
56,6-58,8 58,8-66,2 Dökkur fínn sandur Grábrún mold með flekkjum af dökkum fínum sandi á 63 og 64 sm dýpi Ag4 (Ag+Ga)2, Sh2,Lfe+,Th+,Dg+ tT2
66,2-67,0 67,0-74,0 Eirrauður sandur Grábrún mold Ag4 (Ag+Ga)2, Sh2,Lfe+,Th+,Dg+ tT3
74,0-77,5 77,5-79,4 Svartur fínn sandur Grábrún mold Ag4 (Ag+Ga)2, Sh2, Lfe+, Th+, Dg+ tT4
Öll jarðvegssúlan var frjógreind (sjá 3. mynd) samtals tuttugu frjó-
sýni. Hér var ekki gert ráð fyrir nokkurri eyðu í gróðurfarssöguna sem
frjóregnið skráði. Niðurstöður frjógreiningarinnar eru sýndar á frjólínu-
ritinu Torfmýri A (3. mynd) og í töflu III. Línuritinu var skipt niður
í fjögur frjóbelti (Tm 1 - Tm 4) og verður þeim nú lýst.
Tm 1 Grasa-kattartungu-melgresis frjóbeltið. (Gramineae-Plantago
maritima-Elymus arenarius (Hordeum type) Local Pollen
Assemblage Zone) Dýpi 70-80 sm, frjósýni 16-20. Hár hundr-
aðshluti grasafrjóa (65-68%) einkennir frjóbeltið ásamt hámarki
á línuritum kattartungu og melgresis/korns. Undir lok beltisins
(frjósýni 16—17) eykst hlutur baldursbrár/vallhumals. Hundraðs-
hluti hálfgrasafrjóa er lágur í byrjun beltisins en vex er ofar
dregur.
Tm 2 Grasa-súru-sóleyja frjóbeltið. (Gramineae-Rumex-Ranunculus
Local Pollen Assemblage Zone). Dýpi 66,5-70 sm, frjósýni 13-
15. Hundraðshluti grasafrjóa fer lækkandi á meðan súru-,
sóleyja- og hálfgrasafrjó ná hámarki. Möðrulínuritið sýnir aukn-
ingu, hins vegar fellur melgresi/korn undir lok frjóbeltisins.
Línurit fíflafrjóa er með smáhámarki efst í beltinu. Þetta frjóbelti
lýsir breytingaskeiði yfir í næsta belti, Tm 3, þar sem möðrufrjó
verða ríkjandi (transitional zone).
Tm 3 Möðru-grasa-hálfgrasa frjóbeldð. (Galium-Gramineae-Cyper-
aceae Local Pollen Assemblage Zone), dýpi 61-66,5 sm, frjósýni
8—12. Við upphaf frjóbeltisins hafa möðrur náð hámarki (32%)
en falla eftir það. Hundraðshluti grasanna er í lágmarki, fer þó