Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1885, Blaðsíða 57
Rúm og tími.
Eptir
Dr. Grím Thomsen.
„J>ví andinn rannsakar allt
og jafnvel Guðs leyndarráð11.
St. Páll, Cor. I, 2, 10.
Fyrirvari.
f>egar um heimspekilegar eða hugsunarfræðis-
rannsóknir er að ræða, ber þess eins gæta, að rétt sé
hugsað, en ekki hins, hvort hið hugsaða komi heim
við eldri kenningar, vísindalegs eða guðfræðislegs eðlis.
Riki hugsunarinnar og hugsjónarinnar er riki sér, og
þó bezt fari, að það lifi i friði og samlyndi bæði við
trú og reynslu, þá hefur það þó lögmál sér og annað
en það sem bæði trúin og þau vísindi fylgja, sem við
reynsluna styðjast. Fichte sagði það hverju orði sann-
ara, að það væri álíka, að spyrja heimspekinginn, og
sér í lagi hugsunarfræðinginn, um, hverja trú hann
hefði, og að inna eptir því hjá rúmfræðingnum, hvernig
litir væru þríhyrningar hans. Bæði trú og reynsla, svo
áriðandi sem þær eru hvor á sinn hátt, hafa allt aðra
andlega landareign, en hin hreina hugsun, sú hugsun sem
sé, sem að eins er sínu eigin, röksemdanna ogályktan-
anna lögmáli háð. Trúin er einmitt sannfæring um það,
er vér skiljum ekki, styðst því einmitt ekki við rök-