Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1901, Qupperneq 20

Eimreiðin - 01.09.1901, Qupperneq 20
i8o hringurinn hans á Strympu var stór. Þab var fljótséð : Stórskógur á þrjá vegu nálægt fjörutíu faðma frá kofanum, en þó að sönnu sæist fram á vatnið á einn veginn, þá notaðist það útsýni ekki, því skógurinn bar það ofurliði. Pví varð ekki neitað, að þröng- sýnið var þar mikið, það gat ekki heitið, að það sæist nema upp í heiðan himininn. En hér var eins og himininn steyptist út yfir alla jörðina og allan alheiminn. Og þegar hann lét hugann svífa í norðurátt, fanst honum hann sjá bygð sína liggja í doðamóki, hulda í eilífri þoku, sem enginn stormur megnaði að reka á flótta, en sjálfr var hann nú kominn þangað, sem þokan náði ekki til, og útsýnið var víðtækara og skírara, og himininn stærri og bjartari og lengra frá jörðunni; en svo fanst honum, að þegar hann færi þaðan aftur, þá yfirgæfi hann víðsýni og sólskin, en færi aftur inn í skógarrjóðrið á Strympu, þar sem þrönga útsýnið var, og þokan eilífa grúfði yfir — — — Sólin var fyrir stundu gengin undir og farið að verba skugg- sýnt. Og nú var kveikt á rafmagnslömpunum, sem settir vóru á háar stengur hér og hvar með fram götunum. Jón sá alt í einu tvö stór ljós, annað bar við himininn í vestri, en hitt var í norðri. og sást fyrir ofan húsþökin. Jafnfalleg ljós hafði hann ekki séð fyrri á æfi sinni. »Ljómandýstjörnur eru þetta,« sagði hann. »Svona fallegar stjörnur hef ég aldrei séð á Strympu.« Og er hann hafði skemt sér tímakorn við að horfa á þessar fallegu stjörnur, fór svefninn og þreytan eftir ferðina að sigra hann, svo hann lokaði glugganum og bjóst til sængur. Pá veitti hann því eftirtekt, að hvítu kalkveggirnir í herberginu skriðu krökkir af pöddum, sem hann bar fyrst ekki kensl á, en sá þó fljótt að vóru veggjalýs. Pað vóru líka þriflegar skepnur. Honum þótti einhver munur að sjá þær eða systur þeirra, sem skriðu um veggina á Strympu og varla sást blóðdropi í. fað var líka munur á æfinni, sem þær áttu. far nyrðra höfðu þær í tuttugu ár búið við sult og seyru, og ekki haft annað að nærast á en fjörlaus og úttauguð gamalmenni, en hinar frá barndómi alist upp og lifað í allsnægt- um og eftirlæti hjá íslenzka heldra fólkinu og yngismeyjum þar í borginni; það var sízt að undra, þó þær væru bústnar og sæl- legar. Og út úr þessu leiddust hugsanir hans að öðru háfleygara efni. í seinni tíð hafði hann heyrt marga halda því fram, að naut- gripakyn Ný-íslendinga væri í mestu afturför, og bráð nauðsyn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.