Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1901, Qupperneq 22

Eimreiðin - 01.09.1901, Qupperneq 22
lært hjá þeim þar bænum. Fyrst að vanvirba hann kvöldið áður með kýrkjötinu, og bæta nú gráu ofan á svart með því, að láta hann ekki fá nemaeinn disk af graut. Mikil þó déskotans nánösgatforstöðu- konan verið! Parna heimtaði hún náttúrlega peninga fyrir matinn, og gat þó ekki einu sinni látið hann hafa nógan graut. Satt var það, að ekki drupu gullhringar af búinu á Strympu, en það mátti Ásdís eiga, að hún lét sjaldan graut skorta, og mundu þó fáir ætla, að henni færist betur en núverandi matmóður Jóns. Jæja, hann varð að sætta sig við einn disk af graut, en hann gerði alt, sem í hans valdi stóö, að jafna reikningana við hina réttina, sem á borðinu vóru. Pað stóð heima, að þegar hann hafði lokið máltíðinni, þá kom félagi hans frá því kvöldið áður. Með honum vóru tveir herrar, sem Jón hafði ekki séð fyrri. »Nú Jón,« sagði hann, »áður en við göngum fram fyrir stjórn- ina vantar mig að gera þig kunnugan þessum herrum. Peir ætla að verða okkur samferða til stjórnarinnar og styðja málstað þinn. Petta, herrar mínir, er járnbrautarnefndin frá Nýja-íslandi, Mr. Jón Jónsson á Strympu. Hann er framfaramaður mikill og einn aí forkólfum sveitar sinnar." »Mér þykir vænt um að sjá ykkur, «sagði Jón. »Eg heyri, að þið hérna eruð okkur velviljaðir, og ef svo ber undir, að þið verðið á ferðinni nyrðra, þá farið ekki framhjá Strympu.---------Var það annars ekki kátlegt lagsm, að mér skyldi gleymast að spyrja þig að heiti í gær? Hvað heitir þú tneð leyfi?« »Eg heiti — kallaðu mig Jón, því ég heiti það.« »Sæll nafni. Pað er gott og gamalt íslenzkt nafn, og ég er hreykinn bæði af því að heita Jón og vera íslendingur. — — Svo þið ætlið allir að fylgja mér á kon— á fund stjórnarinnar?« »Já, komdu með okkur.« Þeir gengu síðan allir út og austur strætið, unz þeir komu að horninu á Aðalstrætinu og markaðstorginu. Jón þekti sig þar vel frá því daginn áður. Lengra gengu þeir ekki, heldur fóru þeir inn í rafmagnsvagn, sem þegar þaut af stað með þá á fljúgandi ferð suður Aðalstrætið. Það var nýmóðins ferðalag fyrir Jón. Hann horfði alt í kringum sig og út um gluggana, en gat ekkert séð, hvað það var, sem knúði vagninn áfram. Á báðar hliðar vóru óslitnar raðir af stórbyggingum og hvergi skarð í, nema þar sem strætin lágu austur eða vestur frá Aðalstrætinu. Alt í einu beygði vagninn snögglega til hliðar og byrjaði nú ferð sína vestur Broad-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.