Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1901, Qupperneq 43

Eimreiðin - 01.09.1901, Qupperneq 43
203 íslendingar standi í siðmenningu, því að ljóst sé, að þeim mun minni byrðar sem menn leggi á sig til þess, að efla heill þjóðarinnar, því meir líkist menn villimönnum, sem engin gjöld hafa. Ekki dugi að berja við fátækt íslendinga, því fátæklingar í öðrum löndum beri full- komlega sinn skerf af byrðum þeirra. Þá snýr höf. sér aftur að mentunarleysinu og þeim hleypidómum alþýðu, sem aí því stafi, og nefnir ýms dæmi því til sönnunar. Því næst nefnir hann, hvað ætti helzt að kenna börnum og unglingum, og hvernig þeirri kenslu ætti að vera hagað í ýmsum greinum. En aðal- tillögur höf. um fyrirkomulag skólanna munu koma í síðari kafla rit- gerðarinnar í næsta árgangi, og mun margur, sem lesið hefir þennan »inngang«, bíða með óþreyju eftir að sjá þær. Fjórða ritgerðin í þessum árg. er um »dómstóla og réttarfar« eftir sýslumann Klemens Jónsson, og er hún alþýðlega rituð og getur komið almenningi að góðu haldi. Síðast er svo ritdómur um eitt útlent lög- fræðislegt tímarit eftir útgefandann sjálfan. »Lögfræðingur« er fyrirtaks tímarit, sem maklega er styrktur af landsfé Oss er ekki kunnugt um, hve mikið hann er keyptur og les- inn, en vér gætum bezt trúað því, að hann hefði ekki náð mikilli út- breiðslu. Mönnum mun þykja hann nokkuð þur og kannske óþarflega hótfyndinn. En hvernig sem um það kann að vera, þá er hitt víst, að hann ætti að vera lesinn af sem allraflestum og enginn, sem nokkuð vill hugsa alvarlega um landsmál, getur án hans verið. Ok ekki trúum vér öðru en að þeim, sem »hafa vit í vösum«, þyki nautn í að lesa hann. V. G. HALLGRÍMUR MELSTEÐ: FORNALDARSAGAN. Khöfn 1900. VIII +227 bls. Lengi hefir verið hin mesta þörf á góðri íslenzkri fornaldarsögu, sem gæti flutt námfúsri alþýðu áreiðanlegt yfirlit yfir menningar- og stjórnarsögu fornþjóðanna. Fornaldarsaga Páls Melsteðs átti mikinn þátt í þvf að vekja og glæða huga manna og námfýsi þeirra fyrir sagn- fræði. Einkum var það hér hin mikla frásagnarlist og málsnild höf- undarins, sem gjörði bókina öllum kærkomna. En á henni voru þó ýmsir gallar; skoðanir þær á mönnum og atburðum, er þar var haldið fram, verða margar hverjar að teljast vafasamar og úreltar, og annar stór galli var sá, að á menningarsögu þjóðanna var þar varla minst. J’etta var eðlilegt, þegar litið er til þess, hvernig á þeirri bók stóð, að hún er tekin eftir danskri bók, sem auðvitað náði ekki hærra en flestar danskar sagnabækur á þeim tíma, er hún var rituð, en það var ekki hátt, því dönsk sagnaritun yfirleitt hefir verið mjög bágborin, þangað til nú á síðari hluta 19. aldarinnar. Hallgrímur Melsteð landsbókavörður hefir reynt að bæta úr þessum skorti með nýrri fornaldarsögu, sem Bókmentafélagið hefir gefið út. Bók þessi er einkar-merkileg og í alla staði þess verð, að henni sé athygli sýnd, þvf enda þótt ýmislegt megi að henni finna, er enginn vafi á því, að hún fullnægir miklu betur þeim kröfum, er nú eru settar um slík rit, en saga Páls Melsteðs. í útlendum bókmentum yrði hún líklegast talin of afturhaldssöm og fylgin fomum skoðunum; nú á
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.