Eimreiðin - 01.09.1901, Side 57
217
munnmælum þessum saman á einn stað. Sum þeirra hafa ef til vill
sögulegt gildi.
Sumstaðar eru í sögum þessum prentvillur eða dálítil fljótfærni.
Þannig er t. a. m. vísa Pormóður Kolbrúnarskálds, sem prentuð er í
Grettis sögu á bls. 84, ;eignuð Gretti í vísnaskýringunum aftan við
söguna.
Þeir Valdimar Ásmundarson og Sigurður Kristjánsson eiga þökk
og heiður skilið fyrir útgáfur þessar af íslendingasögum. Það er gjaf-
verð á sögunum, og prentun og allur frágangur er yfirleitt í bezta lagi.
Það er óskandi og vonandi, að íslendingasögurnar komist inn á hvert
einasta heimili á íslandi. Þær vekja ást og styrkja trygð til lands og
þjóðar. H. P.
HAUKUR, alþýðlegt skemti- og fræðirit. III. ár. Útgefandi Stefdn
Runólfsson. ísafirði igoo.
Aðalefnið í árgangi þessum eru tvær þýddar skáldsögur: »Töfra-
mærin« og »Morðið á Jörfa«. Sögur þessar eru eigi sem bezt valdar.
Þær líkjast sögum þeim, sem venjulega eru settar »neðan máls« í er-
lendum dagblöðum. Þær eiga eigi sem bezt við í skemti- og fræðiriti.
»Haukur« flytur og í árgangi þessum nokkrar góðar smásögur,
fróðlegar smágreinar, »fróðleiksmola«, skemtilegar skrítlur og greinar
um bindindi. Alt þetta er að mestu leyti þýtt.
Auk þess er ýmislegt frumsamið í »Hauki«. Þar eru »íslands-
ljóð« Hannesar Hafsteins, ágætt ættjarðarkvæði. Þar er og lag eftir
Helga Helgason við versið: »Þið þekkið fold með blíðri brá«. Þá má
og nefna ferðasögu »Hauks« kringum ísland (Kringsjá). Ferðasögunni
fylgja myndir (eftir ljósmyndum Björns Pálssonar). Myndirnar eru eftir
öllum vonum, að því er prentun snertir. Allur frágangur á »Hauki« er
í góðu lagi.
Þessum árgangi »Hauks« fylgir ágætt blaðahylki (mappe) til þess
að geyma blaðið í. Útgefandinn á þakkir skildar af kaupendum fyrir
þennan handhæga og sjaldgæfa kaupbæti. H. P.
MATTEUSAR GUÐSPJALL í nýrri þýðingu eftir frumtextanum.
Reykjavík igoi.
í »Eimreiðinni« þ. á. bls. 125 er minst á biblíuþýðing þá, er
»Hið íslenzka Biblíufélag« hefir með höndum. Þar er og getið um
þýðinguna á fyrstu bók Móse og Markúsar guðspjalli. Nú hefir félagið
látið prenta þýðingu á Matteusar guðspjalli. Það er lítið kver að stærð,
og verðið er aðeins 15 aurar. Allur frágangur er vandaður. Kverinu
fylgja dálitlar skýringar og athugasemdir.
Endurskoðunarnefndin, sem sér um þýðinguna á ritningunni fyrir
fyrir hönd félagsins, virðist af fremsta megni kappkosta að vinna verk
sitt bæði fljótt og vel.
Að öðru leyti bendi ég á það, sem ég hefi áður sagt um þessa
nýju þýðingu á ritningunni (í »Eimreiðinni« og í »Berlingske Tidende«
i maí þ. á.). H. P.
HAFSTEINN PÉTURSSON: TJALDBÚÐIN V—VII. Khöfn igoo.