Eimreiðin - 01.09.1901, Page 67
227
hana upp að aftan, en í því var riðið í hlaðið, og var þar komin
Porbjörg, unga konan á Bakka.
»?ú ert þá hérna Anna litla,« sagði hún. »Hefirðu fengið þér
hest á þjóðhátíðina?«
»Nei. Pað er enginn hægðarleikur, virðist mér.«
»Já. I’aö segirðu satt. Eg hefi farið yfir um á og til og frá
að reyna til að fá einhverju bikkju handa henni Helgu hjá mér,
en þegar það tókst ekki, lcorn mér til hugar, að henni Bleikálu
hérna yrði líklega ekki riðið inn eftir, og þá vissi ég, að þið
munduð lána mér hana, svo ég skrapp hingað til að vita þaÖ.«
»Maðurinn minn er nú ekki heima, og ég þori ekki að lána
hryssuna,« sagði móðir mín.
»Svo, ekki heima?« Jæja! Eg ætla þá að senda hann Skúla
hingað seinna í dag til að vita um þetta. Fer annars margt héðan
á þjóðhátíðina?«
»Eg veit ekki, hvað margt fer?«
»?ið þurfið ef til vill alla hestana og Bleikálu líka?«
»Pað veit ég ekki, en hitt veit ég, að þó að hér væru tíu
Bleikálur, þá gætu þær allar fengið að koma á þjóðhátíðina.«
»Hefir þá verið beðið um þessa einu, sem til er?«
»Já. T’að hafa komið einir fjórir eða fimm í dag að biðja
um hana, en ég þori engum að lána hana, fyr en maðurinn minn
kemur heim, enda er ómögulegt að hafa hana til reiðar.«
»Iss jú. Menn verða öllu fegnir, heldur en að þurfa að sitja
heima.«
»Heldur vildi ég sitja heima en að þurfa að ríða Bleikálu,
því það verður líklega ekki svo skemtilegt að vera á þessari þjóð-
hátíð.«
»Jú. Víst verður gaman að vera þar,« sagði Anna. »Eað á
að leika á lúðra og syngja og dansa, og nógar verða veiting-
arnar.«
»Eað er þá betra að hafa eitthvað til að kaupa fyrir,« sagði
móðir mín.«
»Ég held, að maður eigi þá fyrir því, þó maður eyði svo sem
tveimur, þremur lo-ónum,« sagði Porbjörg, »og það segi ég satt,
að heldur vildi ég ríða henni Bleikálu en þurfa að sitja heima.
Já! Ég ætla að senda hingað í kvöld til að vita, hvað Bleikálu
líður. Ég má ekki stansa núna, því eg þarf að skjótast ofan í
Vík til að vita um treyju, sem verið er að sauma fyrir mig.«
15*