Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1908, Blaðsíða 12

Eimreiðin - 01.01.1908, Blaðsíða 12
12 legri rannsókn, hverrar tegundar sem er, og ætlar henni að ná fyrir- fram fast ákveðnu takmarki. Það er andi vantraustsins, vantrausts á kristindóminum, vantrausts á guði sjálfum, sem viðbúið væri að steypt- ist niður af himnum, væru mennirnir óbundnir í rannsóknum sínum um hans handaverk. Slíkt vantraust verðskuldar sannarlega ekki kenning hans — hans, sem lét krossfesta sig vor vegna. Eftirtektaverð eru ummæli eins Comtistanna á Englandi (F. Harri- son 1889) um árangur neikvæðra árása á kristindóminn. Hann hygg- ur, að þá er til alls komi, hafi ágóðinn af öllum neikvæðum árásum á fagnaðarerindið sennilegast verið sá, að trúfélagið hafi náð fastari siðferðislegum tökum á kristindóminum. Óefað felst djúpur sannleiki i dómi þessum. Trúarbrögð og vís- indi hafa í vissum skilningi sama markmið -— að komast að sann- leikanum. En kirkjan (öll kirkjufélög) hefir skilið svo afstöðu sína til sannleikans, að hún sé óbrigðleg. Kirkjan sagði: »Vér vitum.« — Vísindin sögðu: »Vér leitum.« Fyrir því urðu framfarirnar vísindanna megin. En kirkjan stóð 1 stað, — eða varð afturhaldssöm — nema þá er vísindin þröngvuðu henni til að stíga feti framar, þröngvuðu henni til nýrrar viðurkenningar í trú og siðgæðum. Auðvitað er það ekki kenning Krists, sem á þennan hátt þarf að hrinda áfram. Það er skilningur kirkjunnar eða kristninnar bæði á því trúfræðislega og siðferðislega í kenningu hans, sem nær meiri og meiri þroska og fullkomnun. í hvert sinn sem »árás« vísindanna — árangur visindanna er þá »árásin« — bregður nýju og bjartara ljósi yfir kristindóminn, þá ryður hann sér brautir gegnum líf og breytni mannanna. Á þennan hátt nær kristindómurinn sannari tökum á mannfélag- inu einmitt með þeim árásum, sem hann verður fyrir. Vera má að einmitt þetta sé sterkasta sönnunin fyrir guðdómleg- um sannleik kenningar Krists. Í’ví meir sem oss fer fram í þvi að þekkja niðurskipun og lögmál náttúrunnar og lífsins (í líffræðislegri merkingu), því ljósar skynjum vér, að á þeim hvíla boðorð Kirists, — að þau eru oss gefin samkvæmt þekkingu á mannlegri náttúru, í þvf skyni, að hún fái náð fullum þroska og sinni fullkomnustu mynd. Vér sjáum, að boð Krists eru ekki »yfir mátt«, heldur takmark framþró- unarinnar fyrir mennina. Frá fyrstu tímum hefir kirkjan ætlað, að hún gæti komist af án þessarar þekkingar á reglufestu og lögum náttúrunnar og lífsins. Meira að segja var þess háttar þekking í þokkabót bannsungin. En mann- kynsagan hefir leitt i ljós, að á þessari þekkingu var hin mesta þörf, ekki sízt fyrir trúarlegan og siðgæðislegan þroska mannanna. Vera má að ekki hafi þessi þörf vakað fyrir hverjum einum vísindamanni. En hvað sem því líður, hefir þó verk vísindanna, að öllu samanlögðu, farið um guðs vegi — í guðs erindagerðum. Staðhæfingar mínar í þessu efni væru lítilsvirði, gæti ég ekki sannað þær með sögulegum rökum. Að færa sannanir fyrir þessu er því tilgangur þessa fyrirlesturs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.