Eimreiðin - 01.01.1908, Blaðsíða 75
HJ.C ARLSEN
|Í wf Jl ; /a ;j;
i\ flnjil lAi)'] ri/7. p - •'■• ■'
Mynd sú, sem hér er sýnd, er tekin eftir kímniblaðinu »Klods-Hans«, og á að
sýna viðtökur alþingismann a í Khöfn 1906. Segir svo í blaðinu til skýringar:
»Viðtökunefndin hafði sem sé af sérstakri kurteisi við Islendinga valið hina loðnustu
Dani til að taka á móti þeim. Meðal þjóðkunnra manna, er þar voru staddir, má
nefna þessa: Bahnson hershöfðingi, Weiss höfuðsmaður, Neiendam hóteleigandi, rithöf-
undarnir Carl Behrens og Maglekilde-Petersen, prófessor Heiberg, barón Reedtz Thott,
Borgbjerg fólkþingsmaður, Poulsen bæjarfulltrúi o. fl. — A næstu blaðsíðu er mynd,
sem tekin er eftir kímniritinu »Blæksprutten», og á að sýna viðtökur konungs og
ríkisþingmanna í Rvík 1907. Fylgja henni engar skýringar, enda þekkjast flestir
mennirnir af kunnugum. Hvern fuglinn með silkihattinn á að tákna, þykir ekki hæfa
að nefna. En kunnugir skilja það af því, hvernig hatturinn situr á höfðinu.