Eimreiðin - 01.01.1908, Síða 68
68
f>að er í alla staða rétt, að við leikhúsleysið á íslandi er lítt unandi,
og þar sem varla verður búist við, að einstakir menn reisi slíkt hús
(því að fáa eigum við örláta eða listelska auðkýfinga), þá væri æski-
legt að landið gæti tekið það á sínar herðar. En það er vafasamt.
hvort fjárhagurinn er svo glæsilegur núna, að þjóðina fýsi til þess
fyrirtækis, og — því miður — er það ekki áreiðanlegt, sem höf. segir,
að þrátt fyrir eyðslu síðustu tíma, þá sé þó »hérumbil sama upphæðin
(og áður) í sjóvetlingnum í kistuhandraðanum, og búið skuldlaust«.
Leikhús í höfuðstað landsins verðum við þó að fá, á einhvern hátt,
hvað sem það kostar— þ. e. a. s. ef höfuðstaðurinn á ekki að vera
sjálfum sér til minkunar. G. Sv.
ÍSLENDINGADAGURINN 2. ág. 1907.
18. þjóðhátíð Vestur-íslendinga (Winnipeg).
Þetta er hátfðaskrá Vestur-íslendinga, á þjóðminningardeginum.
Eru þar prentuð minniskvæði, er ort vóru til »dagsins«, en það sem
mest ber á, er að framan á skránni blasir við fáni Islands, hvítur
kross í feldi blám, og hafi landar okkar vestra þökk fyrir, að þeir
sýna svo »hreinan lit« ! G. Sv.
íslenzk hringsjá.
RAGNAR LUNDBORG: ISLANDS STAATSRECHTLICHE STELLUNG von
der Freistaatszeit bis in unsere Tage. Berlin 1908 (M. 1,50).
Hún kemur á hentugum tíma þessi bók um ríkisafstöðu íslands og ætti því
að verða öllum mikill aufusugestur. Og það verður hún líka sannarlega öllum ís-
lendingum; því fyrir þá er það enginn smáræðis stuðningur í sjálfstæðisbaráttu
þeirra, að mál þeirra sé þann veg túlkað fyrir útlendum þjóðum, sem hér er gert.
Pví hér er að ræða um dóm útlends lögfræðings á réttarstöðu íslands og ágrein-
ingsmálum Dana og Islendinga, manns, sem enga ástæðu getur haft til að sýna
neina hlutdrægni á hvoruga hlið, heldur byggir dóm sinn eingöngu á sögulegri
rannsókn og almennum réttarreglum. Höf. er sem sé sænskur maður, sem að
engu leyti er við deilumál íslendinga og Dana riðinn, og getur því engan annan
tilgang haft með riti sínu en að leita sannleikans og gera hann sem flestum kunnan.
Og einmitt þess vegna hefir hann tekið það heillaráð að birta rit sitt — ekki á
móðurmáli sínu: sænskunni — heldur á alþjóðamáli: þýzku, sem hér um bil allir
vísindamenn og stjórnmálamenn um gjörvallan heim skilja. í»etta er ekki lítill kostur
við bókina í ofanálag við annað.
Efni bókarinnar skiftist í 6 höfuðkafla, en þeir aftur í smærri þætti eða
greinar. Er þar í fyrstu 5 köflunum nákvæmlega rakín stjórnarfarsaga landsins frá
upphafi og alt til vorra daga: I. um landnám, Úlfljótslög og myndun ríkis á ís-
landi; II. þjóðveldistíminn (930—1262); III. fyrra tímabil þingbundinnar konungs-