Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Síða 9

Eimreiðin - 01.09.1909, Síða 9
169 schlágers gekk hús úr húsi og færði áskrifendunum sjálf leikrit þau, er þeir höfðu skrifað sig fyrir. III. Eftir að höfundar höfðu fengið vernd gegn uppprentun rita þeirra, kom til mála, hvort ekki mætti einnig vernda eignarréttinn á ritum þeirra á öðrum tungum, sem menn öldum saman höfðu skoðað sem allra eign eða engra. Fyrir höfunda, sem rita á stórmálunum, skiftir það enganveginn litlu, hvort rit þeirra eru þýdd í óleyfi, en það er þó ekkert höfuðatriði fyrir þá, með því þeir hafa margar miljónir lesenda að þeim á frummálinn í sínu eigin landi, og í öðrum löndum eru líka miljónir manna, sem skilja tungu þeirra. Lesendur þýðinganna geta því naumast orðið eins margir og lesendur frumritsins. En fyrir höfunda, sem rita á tungu smáþjóðar, skiftir spurningin um þýðingarréttinn stórmiklu, með því lesendur þýðingarinnar verða langtum fleiri, en lesendur frum- ritsins, og tekjurnar af leikriti hans verða svo langtum meiri á hinum fjölmörgu útlendu leikhúsum, en frá fáeinum leikhúsum á ættjörðu hans. Nú hafa samt um langa hríð einkum stjórnir og þing smámála- landanna neitað að gera samninga við önnur lönd, sumpart af því, að þau mundu tapa á því, með því að langtum meira væri þýtt á þeirra mál af útlendum bókum, en úr þvi á aðrar tungur, og sumpart af því, að það yrði þrándur í götu fyrir útbreiðslu menningar, sem brýn þörf væri á — og er þetta enn uppi á teningnum hjá Rússum þann dag í dag. En meðan réttur höfunda yfir ritum þeirra er ekki trygður þeim með samningum, geta þeir orðið fyrir fleiri tilfinnanlegum skakkaföllum en þeim, að verða af öllum tekjum af hinum þýddu ritum. Mér er vel kunnugt dæmi þess, að útlendur ránsforleggjari hefir í heilan mannsaldur ekki aðeins stungið í vasa sinn öllum arði af ritum eins höfundar (o: Brandesar sjálfs), heldur og breytt titlum bókanna, bútað þær í sundur og selt kafla úr þeim sem heilar bækur, og svo í ofanálag bætt við neðanmálsgreinum, sem mæltu með forlagsbókum hans, sem höfundurinn hafði aldrei séð. Eg þekki dæmi þess, að slíkir ræningjar hafa í fullu lagaleyfi sölsað undir sig alt æfiverk höfundar, án þess að borga honum einn eyri, ekki einu sinni sent honum nokkurt eintak af ritunum.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.