Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Page 15

Eimreiðin - 01.09.1909, Page 15
!75 Rennur ekki sama froðublóðið í æðum þínum, fyrst þú ert farinn að arga og kýta, eins og borgarbúarnir? . Í’ví fórstu ekki í skóginn? eða plægðir akurinn? Eru ekki grænar eyjar í hafinu? Ég fyrirlít þína fyrirlitning. f’ú ert að aðvara mig, en því varaðirðu ekki sjálfan þig? Af ástinni einni skal mín fyrirlitning rísa, en ekki úr forinni. Þú ert kallaður eftirherma mín, en ég kalla þig rýtandi svín mitt; með rýti þínu skemmir þú fyrir mér lof mitt um heimskuna. Hvað kom þér þá fyrst til að rýta? Að enginn flaðraði og smjaðraði nóg fyrir þér. Og svo rýtir þú í hefndarskyni.« Þannig mælti Zaraþústra; og hann horfði á hina miklu borg, stundi við og þagði lengi. Loks mælti hann þessum orðum: »Mér býður líka við þessari stórborg, ekki síður en við fífli þessu. Hjá hvorugu þeirra getur neitt batnað eða versnað. Vei þessari stórborg! — ég vildi ég sæi nú þegar eldstólpann, sem hún á að brenna upp í. Því slíkir eldstólpar verða að koma á undan hinni miklu dagsbirtu. En þetta bíður síns tíma, sinna forlaga og álaga. Með þeirri kenningu kveð ég þig, flflið þitt: þar sem þú getur ekki elskað, þar skaltu ganga framhjá.« Þannig mælti Zaraþústra og gekk framhjá fíflinu og stórborginni. Þýtt hefur JÓN STEFÁNSSON. Kímnismolar. Ekki þeir Hansar. Bóndi nokkur, sem hét Hans Harri. var einu sinni að hæla sér af því við annan bónda, sem hét Jón, að hann væri skyldur kónginum. xÞví trúi ég ekki,« sagði Jón. »!>ví ekki það? Ég heiti þó Hans Harri, en kóngurinn heitir Hans Hátign.« »0, sussu nei, það eru ekki þeir Hansar, sem þú ert í ætt við, það eru alt aðrir Hansar. Það eru Hansarnir, sem talað er um í tíunda boðorðinu: Hans Uxi og Hans Asni.« Onnur fræði. Dóttirin: »Mamma, nú ætla ég að fara að læra bæði sálarfræði, lífeðlisfræði, líífræði og . . . .« Móðirin: »Nei, Gunna mín, nú skaltu fyrst og fremst fara að læra matreiðslufræði, þvottafræði, pijónafræði og saumafræði. Seinvirkt eitur. Læknir nokkur var f samkvæmi að útlista fyrir mönnum, að kaffi væri seinvirkt eitur. — »Já, seinvirkt er það,«

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.