Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Side 20

Eimreiðin - 01.09.1909, Side 20
i8o 4. aþríl ’og. Nú má óhætt gera ráð fyrir, að »nefndarfrumvarpið« sé til fullnustu dauðadæmt — nú, er Danir sjálfir fyrir munn fræðara síns dr. Kn. Berlíns hafa játað, að skilningur meirihluta þjóðar- innar (innlimunarfrv.) væri hárréttur, en meirihluta nefndarinnar (fullveldisfrv.) rammskakkur. Nú þarf víst ekki framar vitnanna við. »Dönsku bræður« hafa sýnt sig eins »ærlega« og þeir eiga vanda til í Islandsmálum: Eftir á hafa þeir nú látið uppi, hver tilætlunin hafi verið. En íslenzka þjóðin lét ekki blekkjast. Og nú hafa alþingis- forsetarnir 3 verið hér á ferð og skýrt konungi og dönsku þjóð- inni frá málavöxtum, að því er frumvarpsfylgi snerti; þeir hafa ekki hopað þar —• enda gátu þeir það bókstaflega ekki, alt var lagt upp í hendurnar á þeim, með vilja þjóðarinnar og boðum flokksins. Loks hefir þetta haft þann enda, að stjórnarskifti hafa. orðið í landinu og Björn Jónsson gerður að ráðgjafa, svo sem kunnugt er. Margir höfðu búist við því, að í það sæti yröi annar kjörinn. Skúli Thóroddsen var sá eini af íslenzku nefndarmönnunum í fyrra, er stóð fastur fyrir; hann þótti því ekki »lipur«(!). En með sæmd fór hann héðan, hann hafði ekki talað af sér — kaldur kom hann og kaldur fór hann, bráðnaði hvorki í sólarhita kon- ungdómsins ué hlýju skauti »dönsku mömmu«. Enda þótt hann stæði einn uppi á móti 6 og margar hrakspár fylgdu honum úr ýmsum áttum, þá vóru þeir þó eigi allfáir, jafnvel meðal Dana, er virtu framkomu hans; menn sáu þegar, að hann var ósmeykur við að vera einn síns liðs. Stefna sú, er hann hélt fastri, var að vísu ekkert annað en það, sem þjóðin hafði krafist, að gert yrði í nefndinni, en samt hafði hann með þessari afstöðu sinni að nokkru leyti skapað horfurnar, eins og þær urðu síðar. Eða hvernig mundi málinu hafa reitt af, ef hann hefði fylgt hinum nefndarmönnunum ? Vitaskuld hefði allmikill hluti þjóðarinnar þeg- ar snúist í gegn þessu frumvarpsóféti, er fór í gagnstæða átt við kröfur Islendinga, — en hverjir hefðu sigrað? Meirihluti þjóðarinnar fylgdi Skúla að málum og átti hann því að lyktum sigri að hrósa yfir hinum nefndarmönnunum. Pess vegna átti hann, er að auki var gamall alþingismaður, að koma

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.