Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Page 22

Eimreiðin - 01.09.1909, Page 22
182 lykta leitt. Pegar það tókst ekki, þá nær það ekki lengra. Við förum okkar leið og vinnum að málum okkar, sem mest við get- um, án þess að Danir ko'mi þar nálægt. Vinnan á að vera í því fólgin, að halda rétti okkar sem fastast fram í verki, unz við get- um náð viðurkenningu á honum, slitið sambandinu og gerst óháð ríki út af fyrir okkur. Vegur til að heyja slíka sjálfstæðisbaráttu er þessi: Alþingi ályktar, að »stöðulögin« gildi ekki á Islandi; þá er því bjargi formlega úr vegi rutt. Petta er það fyrsta, sem gera á. Síðan eiga Islendingar að byggja stjórnarskrá sína á réttar- grundvelli sínum sem fullvalda ríki. Pessi stjórnarskrá á að vera vopnið. Ógerlegt verður sem sé til lengdar að meina Islending- um, að haga stjórnarskrá sinni eftir því, sem þeim þykir henta, og Danir hafa illan málstað, ef þeir ætla sér að halda því til streitu, að stöðulögin séu réttilega geíin fyrir Island; í raun og veru hurfu þeir líka frá því við nefndarstörfin. Mæti Islendingar mótspyrnu frá Dana hálfu til þessa, þá er sjáanlegt öllum lýðum, að rétturinn er íslands megin, svo að ágætt tilefni er fengið til þess, að höggva sambandshnútinn sundur. En fái þeir þessu framgengt, þá leiðir það smátt og smátt til viðurkenningar á full- veldi landsins (er það eitt ræður öllum sínum málum), og þá eru þeir sjálfráðir um hvað þeir gera — geta beitt fullveldi sínu, er tækifæri gefst, til þess að segja sig úr sambandinu. Pað er og rétt spor í áttina, að taka t. d. slík atriði sem það, að stofnsetja hæstarétt í landinu. En þá má aðeins ekki setja inn í þau lög, er skipa fyrir um það, neitt ákvæði, er felli »úr gildi« þar að lútandi grein stöðulaganna; alþingi viðurkennir sem sé ekki gildi þeirra á Islandi og getur því ekki numið þau úr gildi sem önnur rétt lög, heldur verður það, eins og ég gat um, fyrst að lýsa þau formlega ógild, en sú yfirlýsing gerist með þingsályktun. Jafnframt þessu verður að kappkosta eftir mætti að efla hag okkar og sýna með því, að við getum staðið á eigin fótum, sam- fara því, að við leitumst við að ávinna okkur sem mesta sam- hygð annarra þjóða. Takmarkið með öllu þessu er því ekki það, að gera sam- bandið við Dani sem traustast. Heldur þvert á móti að losa sem mest um það. Pað hefir og, í sjálfu sér frá upphafi og fram á þenna dag, verið frumtónninn í sjálfstæðishreyfingu Islendinga.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.