Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Síða 24

Eimreiðin - 01.09.1909, Síða 24
184 »dönsku mömmu«, en gera yfirbót og éta ofan í sig alt, er blaö hans hefði flutt þeim til hnjóðs, og haldið hann mundi ella eigi verða hafinn til ráðgjafatignar af kóngi. Pað var og satt, að þetta var lítilmannlegt. Hann hefði ekkert þurft um þetta að segja, en úr því hann fór til þess, átti hann að gera það á menni- legri hátt en svona. Menn geta vitanlega sagt, að það komi harla lítið við íslendingum yfirleitt, þótt B. J. afneiti »ísafold« og öllu hennar athæfi, honum muni ekki vera það of gott, ef hann hefir lyst á. Pessu er þó ekki allskostar þannig farið. Að vísu skiftir það almenning litlu, þótt hann fari lítilsvirðandi orðum í dönskum blöðum um þann unga mann, er fullyrt er að hafi verið aðalmeðhjálpari hans í greinaskriftum síðastl. ár, eður vilji gefa honum sök á þeim greinum, er sumum kunna að þykja ógætilega orðaðar. Peir tveir um það. En hitt snertir íslendinga, að hann sem fulltrúi landsins auðvirðir sjálfan sig og þjóðina, er hann kingir því, sem þrásinnis hefir staðið í hans eigin blaði — greinar, þar sem kennir kala til Dana út af meðferð á málum okkar og rétti (eða þar sem skilnaðarhugsun kemur fram). Hver ætli beri ábyrgð á þessum greinum? Auðvitað B. J. Og það má mikið vera, ef hann hefir ekki sjálfur skrifað eitthvað af þeim, og alveg óhugsandi, að honum hafi ekki verið kunnugt um efni meginþorra þeirra. Hví þá ekki að standa við »hvað skrifað er« — allra helzt þar sem það í höfuðatriðum var alveg satt, er í greinum þessum hefir staðið, þótt verið geti, að komast hefði mátt heppi- legar að orði í þeim sumum, B. J. hefði ekki heldur neitt þurft að óttast; hann hefði orðið samþyktur af kóngi, þótt hann hefði ekkert um þetta sagt — og svo hefði farið um hvern þann, er íslendingar hefðu gert út í þeim erindum. Pað var konungur búinn að láta í ljós við menn hér. Og Danir vóru um tíma hræddastir við það, að Islendingar myndu engan ætla sér að senda á konungs fund, en dubba ráð- gjafann upp á sitt eindæmi í landinu sjálfu. Peir — Danir —- vissu hvorki upp né niður, hvað til bragðs skyldi taka, og þeir gátu ekkert gert nema neita »ívilnunum« í frumvarpsbreyting- um, en við því bjuggust menn, og það gerðu þeir líka. Engin »hætta« var því á ferðum; það vita allir, sem nokkuð í þessu grynna. En Islendingum gafst hér tækifæri til þess að koma nú einu sinni fram sem menn, er í hvívetna stæðu við orð sín, og hefði þess verið neytt til hlítar, þá hefði Dönum verið gefið ærið

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.