Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Page 29

Eimreiðin - 01.09.1909, Page 29
189 Pví aö skilnaðurinn hlýtur að vera takmarkið, en sambandið við Dani milliliðurinn (meðalið), »neyðarúrræðið«, á meðan við fáum ekki skilnaðinum framgengt. Pað er jafnvel skiljanlegt, að það sé og verði um hríð álitamál meðal ýmsra, hvort við munum »færir« til skilnaðar nú þegar, eða hvort tímarnir séu »hentugir« til slíkrar baráttu að svo stöddu; um það verða menn ekki sam- mála alt í einu. En um takmarkið geta íslendingar eigi déilt í alvöru. Og þó ruglar E. H. þessu öllu saman og gerir orð álykt- unar þeirrar, er hann var flutningsmaður að á Pingvf., að mark- leysu — hyggur líklega að hann geri sfjórninni og sjálfstæðis- flokknum greiða með því. Nei, óhyggilega fer stjórnin og ísaf. að, ef hún ætlar með þessum hætti að hafa út úr Dönum fullveldisviðurkenningu handa ísl. þjóðinni. Og hve lengi vill hún láta þetta ganga, þangað til grípa ber til »neyðarúrræðisins« f Hve lengi? Pví að blaðið getur ekki hugsað sér »nokkurn danskan stjórnmálamann svo flasfeng- inn, að liann fari að hlaupa eftir þessum kröfum sjálfstæðisflokks- ins«, meðan við erum ekki á eitt mál sáttir. Hve lengi? Ætli »sjálfstæðismönnum« væri ekki sæmra — í staðinn fyrir svona óyndisúrræðamálæði — að leitast við að gera skylda sína og kenna öðrum Islendingum að gera hana: að vinna að því hrukkulaust, að við getum sem fyrst orðið al-sjálfstæðir, lausir úr stjórnlegu sambandi við Dani (því að á meðan við erum í slíku sambandi við annað ríki, »ráðum« við, er minni máttar erum, aldrei til fullnustu »einir yfir landinu«, eins og ráðgj. segist þó vilja). Og vinnan á vitanlega að beinast að því, að gera menn sammála um alt það, er hér að lýtur, en það verður aðeins með því, að missa aldrei sjónar á takmarkinu, heldur hafa það ávalt ljóst fyrir augum og miða við það allar gerðir sínar í lands og þjóðar þarfir. Pað, sem greiðir veginn að takmarkinu, skilnaðinum, á að kosta kapps um að framkvæma; hindrunum á að ryðja úr vegi. Og þennan starfa á að hefja þegar í stað — kappgönguna að markinu. Með öðrum orðum: skilnaðarbaráttuna á að hefja, án þess að hafa það fyrir stafni að flækjast sem lengst með Dönum; hvort það tekur langan eða skamman tíma að komast alla leið, kemur ekki málinu við, ef menn vita hvað menn vilja. Petta vill þjóðin, ef hún er ekki afvegaleidd, og þessi var

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.