Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Side 43

Eimreiðin - 01.09.1909, Side 43
203 kryplingur. — Líkkistur og brúðhjónarúm eru tíðasta yrkisefni þessarra kvæðamanna. Danmörk og Danskurinn eru fyrir utan sjóndeildarhring flestra þeirra eða svo utarlega í honum, að þeir sjá ekki, hvernig þau eru og geta ekkert af þeim sagt. t’eir eru þó ekki allir svo sjóndaprir, sem sést af því, er hér fer á eftir. Og sumir hafa heyrt sitthvað frá þeim sagt, þótt ekki hafi þeir séð neitt með eigin augum. Ef til vill þykir sumum þjóðskáldunum óvirðing í að setjast hjá Símoni Dalaskáldi, meðan vitnaleiðslan fer fram. En ég bið þau að gæta þess, að hér er þeim ekki skipað til sætis í bók- mentasal þjóðarinnar. Pað er engin hætta á, að þau missi neins í af skáldvirðingum sínum. Ritgerð þessi hefði átt að vera miklu fullkomnari. En Eím- reiðin og aðrar ástæður hafa markað mér þröngt sögusvið. Helzt hefði átt að rita um hugarþel íslendinga í garð útlends valds, frá því er Islendingar gengu undir Noregskonung og fram á þennan dag. Væri það hið skemtilegasta viðfangsefni. Vér höfum mjög snemma sögur af því, hvernig Islendingum var innan rifja í garð þess. í sögu Staða-Árna er t. d. frásögn af, að sakir vóru bornar á tvo menn, er áttu að hafa talað xósæmilegar til konung- dómsins en byrjaði*. Pótt »eigi yrði sá áburðrinn, er nauðsyn stæði til undanfærslu«; er það naumast ofdjörf ályktun af þessu, að hið útlenda konungsvald hafi þá átt sér óvildarmenn. — Eg hefi byrjað frásögu mína á Bjarna Thórarensen. Af því að ég varð að ljúka ritgerðinni fyrir tiltekinn tíma, hefi ég ekki getað kannað öll þau rit, er ég hafði ætlað mér. Og mér þótti réttast að birta hana þegar. fað kemur ekki flatt upp á mig, þótt sumum þyki ritgerð þessi stappa óhæfu næst. »Oft má satt kyrt liggja*, segja þeir og þar fram eftir götunum. Ég svara því: Engum myndi þykja óviðurkvæmilegt, þótt ritað væri um skaplyndi Islendinga í garð útlends valds frá upphafi og fram á vora tíma, eins og ég mint- ist á áðan. Tað getur því ekki verið goðgá að rita örstutt brot af þessarri sögu, ef það er gert hlutdrægnislaust. Ég bið þá, er gremjast kann sumt af því, er hér er sagt, að minnast þess, aö hvorugum málsaðila, íslendingum og Dönum, getur orðið nema gagn að því, að sannleikurinn sé leiddur í ljós. Engir gerast óneyddir sambýlismenn, nema það sé, að minsta kosti, meinlaust með þeim. Éjóðir verða og að eiga skap saman, ef náið stjórnarsamband á

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.