Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Síða 46

Eimreiðin - 01.09.1909, Síða 46
20 6 frýs o. s. frv.). I Borðsálminum minnist hann á »yfirvöldin illa dönsk á annarrihverri þúfu«. Hér gæti verið átt við dansklund- uð íslenzk yfirvöld, danska Islendinga í embættisstétt, eða þá danska embættismenn. Jónasi var ekki vel við þá. 1 bréfi 8. ágúst 1837 kemst hann þannig að orði um Lund sýslumann: »í morgun mætti ég Lund sýslumanni. Hann tók ofan höfuðið, þegar hann mætti mér, og hrundu þá úr því kvarnirnar alla götuna«. Pjóðræknum Islendingum á dögum Jónasar var ekki mikið um Dani, er skipuðu embætti heima. I uppkasti Jónasar að Ping- vallabréfinu sést greinilega hugarþel hans í garð Dana. Jónas á tal við Kölska. Fara umræðurnar fram á íslenzku, þangað til þeir kveðjast. Pá þrífur djöfsi til dönskunnar, þegar Jónas er að kveða hann í kútinn: »Sá god Nat da,« sagði djöfullinn, »vi tales nok ved en anden Gang, hvis De kommer til Danmark i Efter- aaret.« »Meget forbunden, hils dine Venner og Bekendte.« »Æh!« sagði djöfsi, »det er smukt Sprog det Danske, men dette Men- neske taler det ikke godt.« Að því búnu varð hann að reyk og hvarf út í nóttina.« Bað er eins og Jónas láti djöfsa eiga heima í Danmörku. Menn taki eftir, hve falleg fjandanum þykir danskan. Bað er mál, sem á við hann. Virðist þetta sýna litla ást á Dönum og því, sem danskt er. Pingvallabréf Jónasar er miklu meira en græzkulaust gaman. Bað er beizk alvaran í hæðnislíki. Jónas hefir ekki ort né ritað beinlínis um stjórn Dana á oss. Pó má ráða í hugsanir hans og tilfinningar á því. Bví verður naumast neitað, að þeim sé það ekki óskylt mál, er Jónas yrkir um »aldir, er stofnuðu bölið kalda, frægðinni sviftu, framann heftu, svo föðurláð vort er orðið að háði.« Á 5. áratug aldarinnar sést enn skýrara en áður, hvað ís- lendingar hugsa um Dani. Eftir Gísla Thorarensen (t. 1818 Ljóðmæli, Reykjavík 1885), er til háðkvæði, »Fyrsta alþing«. Á því sést, að hann hefir ekki haft miklar mætur á þeim. Kvæðið er um: 1. ósvífnisfjárokur Dana á Islendingum, 2. fyrirlitning þeirra á alþingi og réttindum þess, með öðrum orðum á stjórnarsjálf- stæði landsins, og 3. lítilmensku Islendinga og auðsveipni í viður- eign við þá. Gísla þykir aðfarir Islendinga og Dana líkar því, er mýs og kettir eigist við. Pví breytir hann þingmönnum í mýs, og þinghúsinu í búrhillu, þar sem þær heyja þingið, konungs- fulltrúanum — kommissarius — í völsku, danska valdinu í kött. Valskan, »kommissarius«, dregur ekki dul á það við mýsnar —

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.