Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Page 48

Eimreiðin - 01.09.1909, Page 48
208 sem óþarfi sé að efna: »Mýsnar hanga á vonarinnar snaga. Um efndirnar má altaf síðar tala.« En lakast og hlægilegast er, að þingmenn veltast eins og vala við orð hetinar. Peir eru veifiskatar stjórnarinnar dönsku. Valskan heitir einni músinni heilum osti, ef hún smalar vel. Ein músin — þingmaðurinn segir: »Eg sé að mýsnar veltast eins og vala við yðar orð, ó, kommissaríus.« í þingbyrjun vóru mýsnar roggnar og borubrattar, eins og þær ætluðu að hengja bjölluna á köttinn — vilji þingsins átti að verða keyri á hann. Pað er því ekki ný saga, að Islendingar séu illorðir, er Danskurinn er hvergi nærstaddur, en verði að eintómu smjaðurbrosi óðara og þeir hitta hann á götunni, en roðni frá hársrótum ofan í háls og þræti ef til vill fyrir alt saman, ef Daninn af tilviljun hefir heyrt það eftir þeim og ber það á þá. Pá hefir Jóni Thoroddsen ekki altaf verið sem bezt við Dani, að minsta kosti um eitt skeið. Hann tók þó þátt í stríði með þeim, en það hefir víst stafað af skáldlegri æfintýralöngun, fremur en af danskri ættjarðarást. »Var það á svipstundu álykt- að og framkvæmt« (o: að hann færi í stríðið) segir Jón Sigurðs- son í æfisögu hans, »og lagði hann að fám dögum liðnum af stað til hersins í Slésvík«. Hann yrkir um Dani kviðling til Péturs Hafsteins. Hann fer þar hvössum orðum um þá, en minnist samt ekki á; hvernig þeim farist við Islendinga. Pað eru almenn skammyrði, þar sem hann gerir lítið úr þjóðkostum þeirra. Slíkar skammavísur eru varla eftir hafandi, en af því að þær sýna skap- lyndi þessa mikla merkisskálds, er Danir eru öðrumegin, tilfæri ég þær hér. Undrast þú ekki, hin góða og aflmikla hetja, Gorms þó hins gamla þú sjáir grunnhygna arfa strita og sterklega velta steinum til veggja; ei urðu háturnar hlaðnir hellum úr fáum. Veiztu það ekki, minn vinur, sér vilja þeir reisa varða, sem aldur um allan öldum skal votta: engin að önnur þjóð hafi í alheimi víðum meiru stutt megni og hafið Móríuríki.« Neðan máls eru skýringar á, hverjir séu arfar Gorms hins gamla o: Danir, og hvað orðið Móría þýði: »Móría heimskugyðjan hjá Grikkjum, smbr. Ljóðabók Jóns Porlákssonar II, 174, 620«. Pað

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.