Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Síða 56

Eimreiðin - 01.09.1909, Síða 56
2IÖ Konráð Gíslason. Konráð var þá »kominn upp í bekkinn«, eins og Sigurður Breiðfjörð segir, og fékk því hæglega komið skamma- greinum um Gröndal í dönsk blöð. En þeir vóru alt tregari á að veita andsvörum hans viðtöku. Hann er líka reiður dönskum blaðamönnum fyrir óvild þeirra á íslandi og skilningsleysi á ís- lenzkum málefnum: »far (í dönskum blöðum) er tekið við öllum skömmum um íslendinga, en ef þeir vilja bera hönd fyrir höfuð sér, þá fá þeir ekki rúm í blöðunum til þess«. »Længe var Nor- dens!« »Ég tek alt, sem rífur Islendinga niður«, lætur hann Ploug segja. »Danskir blaðamenn hafa aldrei verið svo heimskir, að vera Islendingum meðmæltir. Skammir og fyrirlitning!«, er hann látinn segja skömmu seinna. En það er ekki eingöngu blöð og blaðamenn Dana, sem Gröndal er í nöp við. Pað er þjóðin, tungan og alt, sem danskt er, sem hann hatar og ræðst á. Fyrst er, hve Danir eru illir íslendingum, eins og blaðamennirnir: »Pað má innbyrla Dönum alt, því þeir skilja ekkert í íslenzku og geta ekki lært hana, eins og þú veizt, og þeir trúa alténd því, sem verst er sagt um íslendinga*. Og tungan fær ekki betri útreið. Óðinn segist ekki tala hana nema við dóna. Og djöfullinn talar hana heima hjá sér, eins og hann gerði á Pingvöllum í uppkasti Jónasar: »Pú skilur eiginlega ekkert nema dönsku«, er sagt við hann. Pað er hvortveggja, að mörgum Islendingi er ekki sem léttast um réttan framburð á dönskunni — svo hefir sagt dansk- ur skipstjóri, er verið hefir í förum heima, að hann hafi að eins heyrt tvo Islendinga tala hana vel, og þeir vóru víst báðir af dönskum ættum —, enda hafa þeir lítinn þokka á henni. Tómas Sæmundsson sagði, þegar hann var í Höfn, að sér leidd- ist að heyra þetta »barbariska mál alt í kringum sig«. Og djöfsi skipar — í Gandreiðinni — plötupúkum og drísildjöflum að »hljóða danskt húrra« öðru hverju. Pá finst Gröndal ekki mikið til um bókmentir Dana. »Allar þýðingar af dönskum bókum eru til orðnar eftir mínum innblæstri«, segir djöfullinn. Pað er sneitt bæði að dönskum bókmentum og tungu, er djöfsi segir, að öllum leirskáldum láti bezt að yrkja á dönsku. Pað sést á því, sem á undan er komið, að tvö íslenzk skáld, önnur en Gröndal, hafa ekki borið mikla virðing fyrir gáfum Dana. Bjarni Thórarensen vék því að þeim í »Eldgamla ísafold« (þeim Dönum er skopuð- ust að honum og löndum hans). Jón Thóroddsen smánaði þá fyrir það í vísunum til Péturs Hafsteins. Enn á ég dálítið eftir

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.