Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Page 57

Eimreiðin - 01.09.1909, Page 57
217 úr Gandreiðinni: »Enginn er fjær sjálfshólinu en Danir — — — þeir tala heldur ekki svo mikið, en framkvæma því meira.« Grön- dal grípur á kýlinu. Beztu'mönnum Dana, t. d. Georg Brandes, verður tíðrætt um málandann í þeim (»det danske Vrövl«). Merkilegt er, að skilnaðarhugsuninni skýtur þar upp úr kafinu. Gröndal hefir þótt réttast að láta danskan mann lauma henni út. Pegar Plógur er að verða til á Sprengisandi, segir hann: »Petta land held ég enginn kaupi, ég held það væri bezt að láta þá hafa það sjálfa — við getum ekki varið það, hvort sem er, og allir geta tekið það af okkur, hvenær sem vera skal«. Pessi orð sýna, að Gröndal hefir þótt æskilegt, að vér losuðumst við Dani, enda yrði okkur lítið lið að vörn þeirra, ef á reyndi. Sjaldan hefir stjórnmálaflóðið oltið með meira afli yfir landið en kringum 1870. — Pað sér glögg merki þess í skáldskapnum. Pá vóru menn kröfuharðari en nokkru sinni fyr. Pað er naum- ast tilviljun, að Vorhvöt Steingríms (»Pú vorgyðja svífur«) birtist um það leyti (prentuð í Nýjum Félagsritum 1870). Sterkari frelsisþrá er varla í öðru íslenzku kvæði, einkum í síðasta erind- inu: »Svo frjáls vertu, móðir, sem vindur á vog og vetrarins stormdunur þungu« o. s. frv., sem verður að teljast til hins tígu- legasta og aflmesta, er kveðið hefir verið á íslenzku. Ég vildi, að eitthvert tónskáld vort semdi lag við þessa stormhvöt hins háaldraða og mentaða merkisskálds vors, svo að hún — síðasta erindið — yrði íslenzkur þjóðsöngur. 1873 var haldinn Pingvalla- fundur, þar sem sjálfstæðis landsins var krafist með meiri ákafa en dæmi vóru til áður, eins og kunnugt er. Pá kvað Matthías í fundarlok — hefir þjóðsýnilega verið hrifinn af fjörinu og áhug- anum: Getið verður þess, er þorðu, »Frjáls kjöri þjóð til frelsis þingdjarfir íslendingar fjallbygð Garðars alla; inna einum munni lýður skal lögum ráða; orð hvell á Þingvelli: landrétt hefir guð settan!« — Pað verður ekki mælt á Celsíus né aðra mæla, hve miklum hita kvæði skáldanna hafa hleypt í landsbúa. — Pá er og sem skáldin um þetta leyti hafi fundið á sér, svona annað kastið, að minsta kosti, að sigurinn væri í nánd. Haustið 1869 segist Jón Ólafsson hafa haldið það þá um vorið, að klakastjórn Dana myndi þiðna, hverfa þá um sumarið, sem raunar brást (Haustvísur 1869).

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.