Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Page 68

Eimreiðin - 01.09.1909, Page 68
228 í leikriti hans, »Jón Arason«, fer hinn stórláti Hólabiskup og börn hans hörðum orðum um Dani. Matthías mun svara, að þar lýsi hann skaplyndi biskups og frændliðs hans. En tregur er ég að trúa því, að honum hafi aldrei verið eðlilegt að hugsa þannig um Dani, ekki sízt er allur blær og orðalag á ummælum biskups og barna hans er miklu líkara því sem Matthías Jochúmsson hefði talað þau annó 1900 en Jón Arason eða synir hans 1550. fegar hann kemur til Noregs, verður hann hánorskur. Hann fór til Björgynjar 1898. Pá hvíslar hann því að Dofragyðjunni norsku, að íslendingurinn Bárður Snæfellsás þrái hana altaf: »Enn þráir Noreg, sinn öndvegisstól, — eyjan forna.« 1905, hið mikla sögu- ár Norðmanna, var hann á ferð meðfram ströndum Noregs. Ef Matthías hefði verið trúr Danmörku sinni, hefði hann ort viðvörunar- kvæði til íslendinga, að fara ekki að herma neitt eftir Norð- mönnum og því, sem þeir nú hefðust að. Jafnsögulærður maður og þjóðskáldið hlaut að sjá, að slíkir atburðir vóru hættulegir Dana-vináttu og konunghollustu íslendinga. En það gerir hann ekki. Hann fer heldur ekki að gráta magnleysi landa sinna, er þeim væri dauðinn vís, ef þeir skildu við Dani, sem Norðmenn skilja við Svía. Ollu öðru nær. Pað vill einmitt svo til, að hann hvetur Islendinga til að fara að dæmi Norðmanna: »Hel er oss, ef á hala — heims því eina gleymum — sannan samhug inna, —- sem þann Norðmenn kenna.« Og hver er hinn sanni samhugur, sem »Norðmenn kenna?« Pað segir hann sjálfur rétt á undan í kvæðinu: »Segja nú við Svía — sóknramir Norðmenn: Amen!—Heima krefjumst hafa — heil ráð -— engu deila!« Pað er sá Matthías, er kvað um Pingvallafundinn 1873, er svo yrkir. Og honum nægir ekki að benda Islendingum á Norðmenn 1905, heldur minnir hann þá líka á forfeður sína og fornöld: »Pví að aldri of aldir — áa marki náum, — þrítugt bjarg nema brjóti — bragnar goðamagni.« Eg sé ekki, hvað Matthías getur átt við, er hann minnist á áamark í þessu sambandi, ef ekki algert sjálf- stæði landsins, skilnað. Og hann trúir því, að »frónskar sveitir« eigi »gull, sem dugir að fullu«. Og hann biður Dofra að æra þá með ofviðri sínu, er óski ekki, að ísland »neyti handa«. Ef þetta kvæði er ekki skilnaðarhvöt, er mér óljóst, hvað getur kallast því nafni. Pað væri meira réttnefni að kalla það íslendingahvöt en Noregshvöt. Petta kvæði verður lengi skriflegt vottorð þess, hve skilnaður Noregs og Svíþjóðar 1905 hafi snortið íslendinga djúp-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.