Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1909, Page 71

Eimreiðin - 01.09.1909, Page 71
231 Pað má að vísu halda því fram, að Grímur hafi ort erindið til að sýna veg og veldi Ólafar. En er ekki svo sem mér heyrist á raddblænum, að vitskáldið með Goðmundar-skapið snupri Dani þarna fyrir stjórn þeirra á Islandi? III. Pá er það enn eitt í viðskiftum Islendinga og Dana, sem fær íslenzkum skáldum sárrar skapraunar og þau finna Dönum til for- áttu: Þeir fyrirlíta íslendinga, lítilsvirða þá, þykir sem alt sé fullgott handa þeim og leyfa sér alls konar ókurteisi, er þeir eiga hlut að máli. Dönum þykja Islendingar óæðri verur en þeir sjálfir, virðulegra að vera Dani en Islendingur. Pað er engin furða, þótt Islendingar komi hjárænulega fyrir sjónir fyrst í stað, er þeir koma til útlanda. Innan um vagna- skrölt, stórhýsaraðir og mannþröng útlendra stórborga er alt svo geysiólíkt því, er þeir áttu að venjast í auðnarkyrð íslenzkra fjall- dala. Og það er ekkert undarlegt, þótt útlendingum þyki sumt broslegt í fari þeirra og tiltektum, meðan þeir hafa ekki jafnað sig á öllu því nýnæmi, er ber fyrir augu og eyru, ekki sízt jafnhláturmildum og gleðskaparmiklum mönnum og mörgum Hafnar- búa. Porvaldur Thóroddsen hefir einhversstaðar sagt um þá eitt- hvað á þá leið, að það væri engu líkara, en lífið væri eintómt hopp og hí fyrir þeim. En íslendingar þola illa skopið. Enn verð ég að minna á kvæðið Eldgamla Isafold, þennan nægtabrunn, er ausa má úr slíkum feikna-fróðleik um hugarþel íslendinga í garð Dana og Danmerkur. Bjarni er reiður Dönum, er þeir hlæja að Islendingum, eins og lesendurnir minnast (»Hlær að oss heimsk- inginn Hafnarslóð á«). I einu erindi eftir Bólu-Hjálmar, ortu um miðbik seinustu aldar, kemur sú skoðun í ljós, að Danir telji Islendingum flest fullboðlegt. Dani einn var skipaður í stiftamtmannsembætti heima, sá er var meðallagi vinsæll af þjóðinni. Hjálmar skýrir þetta þannig, að Dönum hafi þótt hann fullgóður handa Islendingum. (»Sjóli vor að sunnan — sendi kostaþunnan — gikk í Garðarsey. — Handa foldu frera — fullgóð þótti vera — grind, sem leyfðu grey«). Nokkrum árum seinna minnist Matthías á Danskinn í »Skugga- sveini«. Par kemur fram tilfinning á því, hve íslendingar láti út-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.