Eimreiðin - 01.01.1911, Blaðsíða 49
49
hans hafði drifið, og altaf sló út í fyrir honum. En eitt mundi
hann fyrir víst, og það var það, að hann hafði kastað barninu sínu
í Blöndu.
En enginn heyrði það á honum, að hann iðraðist eftir því.
Altaf þegar hann talaði um það, stóð það fyrir honum sem óhjá-
kvæmilegt atvik og vottur guðs miskunnar. Pað hafði frelsað
hann frá einhverju enn þá skelfilegra. Guð hafði þó bænheyrt
hann að lokum.
Brotabrot
úr ritum Sören Kirkegaards.
I. ÚR »DIAPSALMATA «
Ég gef míg einkum á tal við börn; því maður maður hefir þó
nokkra von um, að þau geti orðið að vitverum; en þeir, sem eru
orðnir það, — guð komi til!
Éað er ekki snefill af viti í skoðun minni á lífinu. Ég held
að einhver illur andi hafi sett þannig löguð gleraugu á nef mér, að
annað glerið stækki óendanlega mikið, en hitt minki að sama skapi.
Af öllu hlægilegu virðist mér það allra hlægilegast, að vera í önn-
um hér 1 heimi, að hafa hraðann á borði bæði við mat sinn og störf
sín. Þegar ég því sé flugu setjast á nefið á svona eljumanni, þá er
mikið liggur við, eða ef einhver vagninn, sem veltur enn þá hraðara
en eljumaðurinn fer, þýtur framhjá og skvettir á eljumanninn um leið,
eða ef Knippelsbtú er undin upp, eða ef þaksteinn dettur og verður
eljumanninum að bana, þá er mér dillað. Og hver mundi geta varist
hlátri. Því hvað afreka þessir önnum-köfnu æðikollar? Ætli það fari
ekki líkt fyrir þeim og konunni: Það kom eldur upp í húsi hennar
og í fátinu, sem á hana kom, bjargaði hún — skörungnum.
Látið aðra um að harma, hvað mennirnir séu vondir nú á tím-
um; ég harma, hvað þeir eru vesalmannlegir; því þeir hafa engar
ástríður. Hugsanir þeirra eru þunnar og haldlausar eins og kniplingar,
en sjálfir eru þeir eins og kniplingakonur. Hugsanir hjartna þeirra
eru of auðvirðilegar til þess, að geta heitið syndsamlegar. Ormi mundi
máske talið til syndar, að hugsa þess konar hugsanir, en ekki manni,
sem er skapaður í guðs mynd. Þrár þeirra eru seinlátar og sljóvar,
og ástríður þeirra sofandi; þær gera skyldu sína þessar mangarasálir;
4