Eimreiðin - 01.01.1911, Page 61
ói
Leó Tolstoj
(f. 28. ág. 1828, d. 20. nóv. 1910).
Meö Leó Tolstoj er einn af mestu mönnum vorra daga fall-
inn í valinn. Tví hann bar ekki aðeins höfuð og herðar yfir alla
samlanda sína, heldur var heimsfrægð hans svo mikil, að svo mátti
kalla, að hvert orð, er leið af vörum hans hin síðari árin, væri
jafnharðan flutt með rafmagnstraumum um gervallan hnöttinn. Svo
mikil var áfergjan eftir að heyra, hvað þessi hári spekiþulur hefði
að segja samtíð sinni.
Pví Tolstoj var ekki aðeins stórskáld, heldur líka stórspek-
ingur og hinn einkennilegasti siðameistari.
Annars var líf hans harla breytilegt. Hann var greifi og
kominn af einni hinni fremstu aðalsætt á Rússlandi, niðji Péturs
Tolstojs, aldavinar Péturs mikla. Foreldra sína misti hann á
bernskualdri, en hann var ekki á nástrái fyrir því, því hann átti
baéði góða og auðuga fósturforeldra. Var hann snemma settur
til menta, en þótti nokkuð hyskinn framan af og álitinn tor-
næmur. En á þessu varð skjót og mikil breyting, er til háskóla-
námsins kom, því þá las hann af mesta kappi og vakti aðdáun
kennara sinna fyrir frábæra hæfileika; enda frýði honum enginn
vits né lærdóms upp frá því.
Á námsárum sínum var Tolstoj gleðimaður mikill og tók
drjúgum þátt í samkvæmislífi og hverskonar heimsnautn. Fékk
þó um hríð ógeð á slíku og sökti sér algerlega niður í fræði sín
í ejnverulífi. En það stóð skamma stund. Nautnafýstin og nýj-
ungagirnin náðu brátt aftur tökum á honum. Gekk hann þá í
herþjónustu og varð enginn eftirbátur stallbræðra sinna í svalli og
sæílífi, sem þó er við brugðið meðal rússneskra hermanna. Seg-
ist honum svo sjálfum frá, að enginn hafi sá glæpur til verið, er
hann hafi ekki gert sig sekan um á þeim árum. En vísast er
þan allhart að orði kveðið. Tóku nú skuldir hart að þjaka að
honum, svo hann dró sig í hlé og tók að semja skáldsögur sér
til ! dægrastyttingar. Hét hin fyrsta þeirra »Bernskan«. Hún
kom út nafnlaus í tímariti, en vakti þegar svo mikla athygli, að
fretnstu höfundar Rússa um þær mundir fóru að grafast eftir, hver
höfundurinn væri. Frá þeim árum stafa og fleiri af sögum hans,