Eimreiðin - 01.09.1912, Page 21
177
Tímatalsbreytingin.
í Eimreiðinni XVIII. ár, bls. 28 er getið um, að menn séu
farnir að tala um að breyta tímatalinu, og er það eðlilegt, því
það er að ýmsu mjög óhentugt, að sömu vikudaga ber ekki
upp á sömu mánaðardaga; sami mánaðardagurinn er sinn viku-
dagur hvern mánuð, og eigi nóg með það, heldur er og sami
mánaðardagur sama mánaðarins sinn vikudagur hvert ár. Að
breyta vikunum getur varla komið til mála, bæði af því að helgi
sunnudagsins er svo nátengd trúarhugmyndum kristinna manna,
og af því að það er efalaust í sjálfu sér hentugast, að sjöundi
hver dagur sé hvíldardagur; að hafa lengra á milli hvíldardag-
anna mundi ofþjaka mönnum, en að hafa það yfirleitt skemmra
mundi skerða vinnutímann um of. Aftur a móti sé ég enga þört
á að halda fast í mánuðina; það sem upphaflega gaf tilefni til
mánaðaskiftinganna, tunglsljósið, hefir eigi lengur neina þýðingu
fyrir hið daglega líf mentaþjóðanna.
Uppástunga sú, sem getið er um í nefndri grein, að sleppa
að reikna einn eða tvo daga af árinu með í skiftingu ársins, finst
mér mjög óeðlileg. Pað mundi t. d. vera mjög óviðkunnanlegt,
að láta næsta dag eftir laugardag einu sinni eða tvisvar á ári
ekki vera neinn vikudag, og sunnudag koma fyrst á öðrum degi
eftir laugardaginn.
Eðlilegast finst mér hið forna íslenzka (germanska?) tímatal,
að telja 52 vikur í árinu með einni aukaviku, þegar þörf er á, eins
og Eorsteinn surtur fékk lögtekið á alþingi á 10. öld; aðeins væri
ástæða til að gjöra þá breytingu, að miða vikurnar við sjálft árið,
en ekki sumar og vetur, því að árstíðirnar eru svo mismunandi í
hinum ýmsu löndum jarðarinnar.
Árið mætti þá byrja um sama leyti og nú, og hentugt virð-
ist að ákveða, að síðasta vika hvers árs, $2. eða 53. vikan, skuli
byrja þann sunnudag, sem kemur næst á eftir að sólin hefir haft
mesta suðlæga deklínatíón (vetrarsólstöður í Norðurálfu). En af
því að dagurinn byrjar á mismunandi tíma á jörðinni, þyrfti að
miða við einhvern sérstakan hádegisbaug, t. d. þann, er liggur
um Greenwich. I’essi síðasti sunnudagur ársins ætti svo að vera
-jóiadagur; viku síðar byrjaði árið; 14. sunnudagur ársins gæti þá