Eimreiðin - 01.09.1912, Page 25
íslenzkt íþróttalíf.
Eftir SIGURJÓN PÉTURSSON.
II.
Eins og áðnr var á vikið, hafa mörg kappsund verið háð
við sundskála »U. M. F. Rvíkur«, og skal hér minnast hinna
helztu.
Eftir sumarið 1909 tekur smátt og smátt að vakna mikill á-
hugi meðal sundmanna í Rvík, enda eðlilegt, að áhuginn^ verði
þar mestur, er beztu kraftarnir eiga heima. Og til þess að örva
þennan vaknandi áhuga enn meir, ákveður svo Ungmennafélag
Rvíkur vorið 1910 að gefa «sunclbikar íslands" til sæmdar og
vegsauka mesta sundmanni landsins. Skal um bikar þennan þreytt
einu sinni á ári 500 stiku sund, og heitir það *Isiendingasund«.
f*að skal háð í sjó á helztu stöðum landsins, en ávalt undir um-
sjón og eftirliti U. M. F. R., sem jafnan er aðaleigandi bikarsins,
þótt sá, er hann vinnur, hafi leyfi og rétt til að geyma hann
sem stundareign sína, unz hann hefir mist hann sökum ósigurs á
Islendingasundi. Var þetta vel og mannlega af sér vikið af U. M.
F. R., enda hefir og ráðstöfun þessi þegar lyft drjúgum undir
sundlistina, og þannig orðið góður vísir til aukinnar menningar.
Sumarið 1910 vóru háð leikmót í Rvík og hófst hið fyrsta
5. júní. Vóru þá á Melunum þreytt bæði 100 og 1000 st. skeið,
og urðu keppendur allmargir í báðum skeiðunum. I iOO st. skeið-
inu varð fyrstur Jón Halldórsson bankaritari, og rann hann
skeiðið á 1U/5 sek. Er það eitt hið allrabezta skeið, er runnið
hefir verið vor á meðal, enda er Jón öllum mönnum frárri og
bezt lagaður til skeiðs, og frábær leikfimismaður yfirleitt. Nr. 2
varð Helgi Jónasson (i24/5 s.) og nr. 3 Kjartan Konráðsson (13
s.). En í 1000 st. skeiðinu varð nr. 1 Sigurjón Péturssojn
(2 m. 45 s.), nr. 2 Ólafur Magnússon (2 m. 55 s.) og nr. 3 Magn-
ús Tómasson (3 m. 3 s.). Þegar þess er gætt, hve litla æfingu vér
höfum í skeiöhlaupi hér á landi, í samanburði við það, sem ger-
ist annarstaðar, þá má þetta heita ágæta vel runnið. í Danmörku
hefir t. d. fráasti skeiðmaðurinn runnið 1000 stikur á 2 m. 44 s.,
og síðan enginn náð svo miklum hraða.