Eimreiðin - 01.09.1912, Page 26
182
Að skeiðhlaupunum loknum streymdi fólkið suður að sund-
skála, og léku þar 20 ungir menn sundlistir á ýmsa vegu, bæði
björgunarsund og aðrar sundþrautir, og mátti þar sjá mörg þrif-
leg tök og knáleg. En fyrsta kappsundið við sundskálann það
sumar var háð 19. júní, og var sundskeiðið 50 stikur. Preyttu það
skeið 6 menn, og varð Stefán Olafsson fyrstur. Hann synti
bringusund og náði skeiðsenda á 36 sek. Er það hinn mesti
sundhraði, sem enn er kunnur hér á landi, og sýnir, hve mikilla
framfara má vænta í sundlistinni með tímanum — þessari beztu,
heilnæmustu og nauðsynlegustu af öllum íþróttum vorum. Nr. 2
varð B. G. Vaage (40 3/é s.) og nr. 3 Guðm. Kr. Guðmundsson
(43 l/a s.). Síðar var háð kappsund fyrir sveina, yngri en 18 ára,
um jafnlangt skeið, og varð þar nr. 1 Ásgeir Ásgeirsson (40
s.), nr. 2 Tómas Hallgrímsson (401/* s.) og nr. 3 Erlingur Páls-
son (4o1/íí s.). Á eftir kappsundinu vóru sýndar ýmsar sundlistir,
og svámu menn þá út að flotpalli spölkorn frá landi. Er hann
með hárri grind og tveimur stökkpöllum, og af þeim vóru leikin
sundstökk niður í sjóinn. En í þessu skortir enn mjög á æfingu
hjá öllum, því að stökkva vel til sunds er einhver hin fegursta
og áhrifamesta íþrótt, sem fyrir augu ber, og því yndi hvers
manns, er vel hefir tamið sér hana. Hún er því sú íþróttin, er
hvað mest rækt er við lögð hjá stórþjóðunum, til þess að gera
syni þeirra sem stæltasta og fimasta. Með því að láta gera þenn-
an stökkpall hefir Ungmennafélagið lyft undir og hrundið á stað
þeirri sundlist, sem bæði hrífur áhorfendurna mest og bezt eflir
áræði sundmannsins. Má því af þessu vænta góðs árangurs í
framtíðinni.
Hinn 26. júní fór fram »kappskeiðið mikla«, er við köllum
svo, míluskeið eða betur. Keptu nú 7 menn, og varð Sigurjón
Pétursson fyrstur, rann skeiðið á 28. m. 14. s. Nr. 2 varð JóeP
Ingvarsson, Hafnarf. (28 m. 57 s.) og nr. 3 Ólafur Magnússon (29
m.). Höfðu bæjarbúar raðað sér meðfram Hverfisgötunni til beggja
handa, og lék mikil forvitni á, hver fyrstur yrði. Var og skeið-
mönnum fagnað með dynjandi lófataki og þakkað fyrir rösk-
leikann.
Enn var leikmót háð 31. júlí, og var þar fyrst runnið 500
st. skeið á Melunum (nr. 1 Ól. Magnússon, nr. 2 Magnús Tómas-
son), en því næst haldið til sundskálans og þar háð kappsund,
105 st. skeið (átti að vera 100 st. en reyndist eftir á 105 st.).