Eimreiðin - 01.09.1912, Qupperneq 28
Næsta hálfan mánuðinn eftir þetta kappsund æfðu sundmenn
sig af kappi, því U. M. F. R. hafði auglýst »ísiendingasund<-<,
og var því áhugi mikill og kepni, sérstaklega meðal sundgarp-
anna Stefáns Olafssonar og Sigtryggs Eiríkssonar, er sigrað hafði
sumarið áður. Bjuggust menn því við harðri baráttu þeirra í mill-
um, enda varð og sú raunin á.
Sunnudagurinn 14. ág. 1910 ranti upp, og vóru þá bæjarbúar
kl. II árd. komnir suð-
ur að sundskála svo
hundruðum skifti. Var
ró og kyrð yfir öllum,
og yndislegur, hressatidi
sumarblær yfir leikvang-
inum. Drógu þó margir
áhorfettdur þungt and-
ann af meðaumkun með
sundmönnunum, er þeir
sáu, hve langt skeið
þeir áttu að þreyta:
500 stikur (250 fram
og aftur). Fyrst þreyttu
þeir Einar Guðjónsson
(11 m. 45 s.) og Sigurð-
ur Sigurðsson (11 m.
54 s.), þá Guðm. Kr.
Guðmundsson (11 m.
574/5 s-) °g Sigurjón
Sigurðsson (11 m. 512/s
s.), og loks þeir 3 Guðm.
Kr. Sigurðsson (11 m.
1. STEFÁN ÓI.AFSSON, SUNDKÓNGUR ÍS- 2l2/s S.), Sigtryggur Ei-
lands 1910. ríksson (10 m. 5 s.) og
Stefán Ólafsson (9 m.
542/ð s.). Mest var kappið milli þeirra Stefáns og Sigtryggs, og
mátti lengi eigi í milli sjá, hver hærra hlut mundi bera. En er
þeir höfðu synt 400 stikur, þaut Stefán fram úr af miklum snar-
leik og náði markinu rúmum 10 sek. á undan Sigtryggi. Dundi
þá við lófaklapp hjá áhorfendum sem þakklæti fyrir ágæta frammi-
stöðu sundmanna, og er þeir gengu upp bryggjuna, lék horn-