Eimreiðin - 01.09.1912, Side 31
i8.7
son og Erlingur Pálsson, sem varð langfyrstur, einar 37^/2
sek. Var þann dag gott veður, eftir því sem hægt er við að bú-
ast um hávetur, enda var mikill mannfjöldi viðstaddur og blásið
í lúðra fyrir og eftir. Hélt og landlæknir snjalla ræðu og afhenti
Erlingi bikarinn og var honum fagnað sem sigurvegara.
Nýjárssundið er gleðilegur vottur þess, að kjarkurinn sé aft-
ur farinn að lifna við hjá þjóðinni. Til skamms tíma vóru flestir
svo hræddir við vatnið, að þeim fanst dauðinn vís, ef þeir færu
í kalt vatn. En vaninn gefur lystitia, og hvergi er jafnnauðsyn-
3. KEPPENDUR UM NÝJÁRSBIKARINN 1. JAN. 1912.
legt að venja sig við kalt vatn eins og á Islandi. Pví þar er
mönnum hætt við að þorna svo upp í ofnhita, að metin þoli
ekki útiloftið, með því hörundið verður svo veikt, að það getur
ekki veitt líkamanum nægilegt skjól. En úr þessu má bæta með
því, að herða líkamann smámsaman, venja hann við kuldann og
vatnið.
Eins afreksverks verður enn að geta, sem Ungmennafélag
Rvíkur hefir unnið í samfélagi við Ungmennafél. Iðunni, og það
er, að ryðja öllu því grjóti, sem lá í Oskjuhlíðinni, þar sem nú er