Eimreiðin - 01.09.1912, Síða 58
214
ekki hættulaus, því sjúklingarnir fá vanalega mjög mikla hitasótt
eftir innspýtingarnar og aðrar þjáningar, sem stundum geta valdið
bráðum bana.
»Antimeristan<i nefnist annað krabbameinsmeðal, sem ný-
iega hefir verið uppfundið, en er enn svo lítt reynt, að ekkert
ákveðið verður sagt um verkanir þess; en margir gera sér góða
von um, að það muni geta komið að haldi í mörgum tilfellum.
Pá hafa menn og tekið bæði Röntgensgeisla og hið tiltölulega
nýfundna frumefni radíum í þjónustu læknisfræðinnar gegn krabba-
meini í hörundi. Auðvitað hafa menn reynt mörg önnur meðul
og lækningaaðferðir, en nú mun þó hið helzta talið.
Eg hefi nú í sem fæstum orðum reynt að gefa skýringu á
þessum voðalega sjúkdómi, sem stöðugt virðist fara meir og
meir í vöxt. Nú sem stendur eru vísindamenn og læknar um
allan hinn mentaða heim önnum kafnir í að gera nýjar tilraunir
og rannsóknir, og því líklegt að margt og mikið viðvíkjandi
krabbameinsemdum verði uppgötvað á komandi árum, einkum er
þess er gætt, hve langt menn hafa komist áleiðis síðustu io árin.
Nú er sjúkdómurinn að minsta kosti ekki eins leyndardómsfullur
og fyr. Hið aldalanga vonleysi um, að nokkurntíma mundi takast
að vinna bug á honum, er nú tekið að réna. Nú vita menn, með
því sem næst fullri vissu, að krabbamein er ekki næmur sjúk-
dómur, að bakteríur eru ekki valdar að honum, menn hafa reynslu
fyrir, að yfirflutningur á honum frá einu dýri til annars er mögu-
legur, og menn vita nú það, sem mestu skiftir, að meinsemdin er
í sjálfu sér ekki alveg ólæknandi, en að bæði menn og dýr geta
læknast af náttúrunnar eigin völdum, og að því hlýtur að því að
reka, að meðul finnist gegn þessu meini í náttúrunnar ríki, sem
vísindin fyr eða seinna mutiu geta framleitt og notað, og þannig
læknað og frelsað þúsundir, eða öllu heldur miljónir, hinna aumk-
unarverðustu sjúklinga.
Kaupmannahöfn 5. apríl 1912.