Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1912, Page 67

Eimreiðin - 01.09.1912, Page 67
223 Næsta dag var hreiðrið tómt og beiskja einverunnar lagðist eins og farg á Hattó. Hægt og hægt féll handleggurinn niður með hlið hans, og nú fanst honum öll náttúran halda niðri í sér andanum, til að hlusta eftir dunum dómslúðursins. En í sama bili komu allir fuglarnir aftur og settust á höfuð hans og axlir, því þeir vóru ekki minstu vitund hræddir við hann. Pá brá alt í einu ljósglampa fyrir í hinum hálfringlaða heila Hattós gamla. Hann mundi nú alt í einu eftir því, að hann hafði látið hand- legginn síga niður á hverjum degi, til að gæta að ungunum. Og þarna stóð hann grafkyr og ungarnir allir sex vóru að flögra og leika sér umhverfis hann, og hann kinkaði glaðlega kollinum til einhvers, sem hann þó ekki sá. »Pú sleppur«, sagði hann, »þú sleppur. Eg hef ekki efnt orð mín, og því þarft þú heldur ekki að efna þín orð«. Og honum virtist skjálftinn líða úr klettunum og fljótið leggj- ast rólegt til hvíldar í farveg sinn. Þýtt hefir B. P. BLÖNDAL. Einokun. Pegar þú kemur þar í svcit, sem þríment er á dauðri geit. Og öllu snúið ófugt þó^ aftur og fram i hundamó. JÓNAS HALLGRÍ MSSON. Árið 1911 var sögulegt ár á Islandi. I’aö var tvígilt júbílár. Pá var með hátíðahöldum um land alt, minningarmerkjum, ræðum og ritum minst aldarafmælis tveggja þjóðskörunga, sem mesta blessun hafa afrekað landi voru. I júní var minst 100 ára afmælis Jóns Siguróssonar og í desember 200 ára afmælis Skíila Magnússonar, landfógeta. Annar þessara manna, Skúli fógeti, hafði varið allri æfi sinni til þess, að berjast

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.