Eimreiðin - 01.09.1912, Blaðsíða 79
235
ar, t. d. katóska (bls. 31) f. katólska, eonfessionis (34) f. confessionis,
tútersk (35) f. lútersk, heilbrig(>i (42) f. heilbrigðri, embæstisverk (72) f.
embættisverk o. s. frv.
Sjálfsagt er bókin einkum ætluð til kenslu við háskólann, en hún
verður eflaust líka keypt mikið út um alt land bæði af öllum prestum
og fjölda annarra manna. p q
SYRPA I, 1 — 2 Winnipeg 1911.
Svo heitir tímarit, sem herra Ólafur S. Thorgeirsson í Winni-
peg er byrjaður að gefa út, og á það að flytja frumsamdar, þýddar
og endurprentaðar sögur og æfintýri og annað til skemtunar og fróð-
leiks. í’að á að koma út fjórum sinnum á ári, 4 arka hefti í hvert
sinn, og kosta 1,40 árg. eða 35 cents hvert hefti. Efnið í tveimur
fyrstu heftunum er allskemtilegt og alþýðlegt. y q
JÓN ÓLAFSSON: MÓÐURMÁLSBÓKIN. Rvík 1911.
Bók þessi er ætluð til að vera kenslubók í íslenzkri málfræði og
skiftist í 4 meginþætti: orðflokkana, hljóðfræði, beygingafræði og orð-
myndunarfræði. Er hún æði-athugunarverð í ýmsum greinum, enda
ekki við öðru að búast, þar sem höf. hefir aldrei notið fullkominnar
mentunar í málfræði, og svo þar við bætist, að hann hefir að eigin
sögn hroðað henni af, samið hana í hjáverkum og á hlaupum, ofhlað-
inn öðrum störfum. Þannig kveðst hann hafa samið alla orðmynda-
fræðina á einni nóttu, og formálann í ofanálag! Eimr. hafði ætlað sér
að flytja ýtarlegan ritdóm um þessa bók og sýna fram á galla hennar
og kosti, en að þessu sinni er ekki rúm fyrir hann. y q
JÓLAHARPA. Fjórrödduð sönglög, safnað hefir Jónas Jémssmi.
Reykjavík 1909, 1910 og 1911.
Þessi þrjú hefti hafa inni að halda 35 sálmalög með íslenzkum
textum fyrir blandaðar raddir. Úrvalið virðist allgott; eru þar lög eftir
ágæt tónskáld, eins og Bach, Beethoven, Gluck, Hándel, Mozart og
Schubert, og má þar finna ýms einkennileg gömul sönglög. Þó er fátt
af norrænum lögum og ekkert íslenzkt, En þau koma að vonum, ef
safninu verður haldið áfram. Á kápunni innanverðri tveggja fyrri heft-
anna er prentuð burðar- og ártíðaskrá merkra söngfræðinga, allnákvæm ;
— þó vantar þar tvö merk dönsk tónskáld, þá P. Heise og P. E.
Lange-Miiller —, og á kápu þriðja heftisins eru stuttar æfisögur tón-
skálda þeirra, sem lög eru eftir í Jólahörpunni. — Allur frágangur er
laglegur, og prentvillur hefi ég ekki rekist á aðrar en Fin« Henriques
í st. f. Finz H. H W