Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1915, Síða 13

Eimreiðin - 01.09.1915, Síða 13
169 var honum stranglega hegnt, enda kom það örsjaldan fyrir. Pessi leyndardómsblæja, er hvíldi yfir starfinu, var vitanlega vel til þess fallin, að vekja forvitni manna, og þá líka, ef til vill, oft og tíðum löngun til að kynnast félaginu nánar. En hún var líka vel fallin til þess, að fólk gæti breytt út óhróðurssögur um templara. »Nú eru þær 9 óléttar í stúkunni,« kvað sagt hafa verið einu sinni. En svo reyndist engin ólétt. Vestfirðingar héldu, að um galdra og gjörninga væri að ræða, Sunnlendingar um óguðlegar samkomur og dansa, Norðlendingar um tómt trú- arstagl og kreddur, en Austfirðingar vissu hvorki út eða inn — frá almennu sjónarmiði! En einmitt þessar skammir og óvinátta 8. Stefanía Guðmundsdóttir. 9. Ámi Eiríksson. út á við var styrkur Reglunnar. Meðlimir hennar héldu miklu fastar og betur saman, en ella hefði verið, eða verið hefir hin síðari árin. Og því er sennilegt, að aldrei hafi verið meiri þrótt- ur og dugur í félaginu, en einmitt þau ár. Og hafi nokkurntíma ríkt bróðurandi innan vébanda Reglunnar, hefði það átt að vera þau árin. En þekkingin á Reglunni fór sívaxandi, og brátt vissu menn, að sögusagnirnar vora ekki sannar. Sumt af því, er þau árin var fundið að Reglunni, hefir altaf verið að henni fundið af einstökum mönnum. Eað er trúarblær- inn, sem er yfir störfum og siðum Reglunnar. Og þó er miklu minni trúarblær yfir starfinu á Islandi, en t. d. á Bretlandi. Á íslandi láta templarar sér nægja, að kalla hver annan bróður og systur á fundunum, en haga sér svo ekki sem góð og ástrík systkin utanfunda. En Bretar segja í daglegu ávarpi bróðir og

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.