Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1915, Side 14

Eimreiðin - 01.09.1915, Side 14
 170 systir, þó utan funda sé; þaö hafa flestir brezkir templarar, er ég hefi kynst, aö minsta kosti gert. Nú er þetta að taka breyt- ingum; trúarblærinn er sumstaðar, t. d. í Svíþjóð, alveg horf- inn, því nú mega Stórstúkurnar sjálfar að mestu ráða siðum sínum. En það, sem ef til vill mest af öllu breytti almenningsálitinu á Reglunni, var dugnaður sá, er templarar sýndu. Þessi árin var enginn verulega stór fundarsalur til í Reykjavík. Stúkan »Eining- in« leigði stærsta fundarsalinn — í Glasgów —, sem hægt var að fá. Og til þess að standast straum af leigunni og fá fé inn í hússjóð, þá léku stúkufélagarnir sjónleiki. Par byrjuðu þau frú 10. J. A. Mathiesen. 11. Sigurgeir Gíslason. Stefanía Guðmundsdóttir og Árni Eiríksson kaupmaður að leika, og má þá eflaust segja, að það hafi verið upptökin til þess, að »Leikfélag Reykjavíkur« varð síðar stofnað, 1893. Pau Árni og Stefanía hafa oft síðar stutt Regluna með leik- list sinni, bæði með því, að leika til ágóða fyrir Regluna, og með því, að skemta á stúkufundum. Og Reglan á þeim báðum, eins og fjöldamörgum fieirum, afarmikið að þakka. En það fór svo fyrir »Einingunni«, að húsið varð oflítið — hún sprengdi það utan af sér. Og þá fundu hinir hugumstóru Einherjar það snjall- ræði, að rétt væri af Reykiavíkurstúkunum að byggja sér hús, stórt hús, sem hefði stærsta fundarsalinn í bænum. Og eftir mikið þjark og stapp tókst þeim að fá »Verðandi« til að fylgja sér að málum, og var húsið bygt suður í Tjörninni. Tjörnin var fylt upp, meðlimirnir gerðu það að vetri til í frjálsum dagsverk-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.