Eimreiðin - 01.09.1915, Blaðsíða 39
!95
héldu fram vínsölubanni, var með öllum greiddum atkvæðum
{troðfult Iðnaðarmannahúsið) gegn io atkv. samþykt tillaga með
aðflutningsbanni, og mátti þó heita, að ekkert væri fyrir
henni talað. Pað voru því margir templara, er bjuggust við því,
að vínsölubann mundi sigra í St. St, og ég man, að Indriði
sagði við mig, að það væri kraftaverk, ef ég gæti fengið aðflutn-
ingsbann samþykt þar. Eg hét að gera hvað ég gæti, og ég
hafði þann kost, að vera »údæll og útrauður*, og stóð á sama,
við hvern var að etja. Og ég tók, þegar er fulltrúar komu, að
undirbúa málið, ásamt Davfí) 0stlund, ritstjóra, og Sigurði Eiríks-
39. Jón Árnason.
40. Pétur Zophóniasson.
syni; en auk þess aðstoðuðu þar dyggilega margir aðrir, t. d.
Jón Arnason, Sveinn Jónsson og /isgrímur Magnússon barnakenn-
ari. I nefnd þeirri, er hafði með málið að sýsla á þinginu, sátu
þeir Haraldur Níelsson, Sig. Jónsson barnakennari, Ilelgi Sveins-
son, Ásgeir Pétursson kaupmaður og Guðm. Björnsson landlækn-
ir, og var hann framsögumaður nefndarinnar. Nefndin lagði til,
að skorað væri á alþingi, að setja milliþinganefnd í málið, þar
sem »engar líkur væru til þess«, að alþingi í sumar samþykti
lög um aðflutningsbann eða vítisölubann. Eg kom ásamt 21
fulltrúa með breytingartillögu um, að fela framkvæmdarnefndinni
að leggja frumvarp til laga um aðflutningsbann fyrir þingið, og
bað jafnframt um nafnakall. Pað var nafnakallið, er reið bagga-
muninn. Pingið sátu 40 fulltrúar, og tillaga frá 22 fulltrúum var
sjáanlega samþykt. En þegar nafnakall er ekki viðhaft í Stór-