Eimreiðin - 01.09.1915, Blaðsíða 59
215
það geta, hafa oft beitt hæfileikum sínum til þess, að skemta
fyrir sjúkrasjóðina aðallega, t. d. leikkonurnar Stefanía Guð-
mundsdóttir, Gunnþórunn Halldórsdóttir og Guðrún Indriða-
dóttir. Reglan hefir hiklaust átt mikinn þátt í að ketina kven-
fólkinu að starfa og beita kröftum sínum, og kvenfrelsiskonurnar
á íslandi eiga án efa Reglunni mikið að þakka. »Systurnar«
eiga sinn stóra og mikla þátt í því, hve starfið hefir gengið vel.
Nöfn þeirra eru svo mörg, að eitt hefti Eimreiðarinnar gæti ekki
flutt þau öll.
Hið annað, er ég vil nefna, er, að Reglan hefir, með hin-
um miklu fundarhöldum sínum, og með hinu ágæta fyrirkomulagi
64. Gudrún Jónsdóttir.
65. Guðrún Hannesdóttir.
sínu, kent meðlimunum að starfa í félagsskap og fyrir heill þjóð-
arinnar. Hún hefir kent meðlimunum að tala — »stúkumælska«
er það kallað stundum. Pað er afar-mikilsvert fyrir hvern mann,
að geta komið fyrir sig orði á mannfundum, geta stjórnað vel
fundi og ritað fundargerðir. En þar standa almúgamenn, sem
eru æfðir templarar, hinum langtum framar. Eað hefir Reglan
gjört, það er einvörðungu hennar verk. Pað er ekki tilviljun
ein, að hvar sem farið er meðal félagslífsins í Rvík, þá má
finna áhrif hennar, meðlimir hennar eru helztu starfsmenn
þeirra; og orsökin er vitanlega sú, að þeir hafa lært að
nota krafta sína, og aðrir — vitandi eða óafvitandi — viður-
kenna það.
í nánu sambandi við þetta er hið þriðja, að Reglunni hefir
tekist að skapa meiri félagsanda og samheldni meðal félaga