Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1915, Qupperneq 66

Eimreiðin - 01.09.1915, Qupperneq 66
222 f>að má að vísu losast við umboðsmanninn við kaup á útlendum vörum með því, að kaupa af vörubjóðum, eða umboðsmönnum er- lendra vöruhúsa, sem nú ferðast með sýnishorn og bjóða kaupmönn- um á íslandi allskonar vörur. Hér hverfur þá umboðsmaðurinn sem milliliður, en þá kemur aftur í hans stað vörubjóðurinn. Hér er það að athuga, að vörubjóðar þurfa að fá kostnað sinn við ferðalagið á íslandi og til íslands endurborgaðan, cg hlýtur sá kostnaður að leggj- ast á vörur þær, sem hann hefir að bjóða. En sá kostnaður verður meiri en þau 3 °/o, sem umboðsmaðurinn reiknar sér í ómakslaun. Auk þess liggur það í hlutarins eðli, að vörubjóðurinn, sem fær »pró- sentur* hjá húsbónda sínum af vörum þeim, sem hann selur, reynir af öllum mætti að selja sem mest, hælir vörum sínum á hvert reipi og fær oft kaupmann til að kaupa vörur, sem hann hefir kannske ekki beinlínis brúk fyrir og liggur svo með óseldar. En umboðsmað- urinn, sem kaupir á þeim stöðum, sem eru ódýrastir, sendir ekki ann- að en það, sem kaupmaðurinn sjálfur óskar að fá. Það er aðgæt- andi, að ísland liggur svo afskekt, að það er miklu erfiðara að ná þar góðum tilboðum, en í þéttbýlum verzlunarstöðum erlendis. Sala á íslenzkum vörum. Eftir þeirri reglu: að hafa milli- liðina sem fæsta, ætti bóndinn, kaupfélagið, eða kaupmaðurinn, að senda vörur sínar beint til einhvers manns, sem hann veit, að kaupir þær vörur. En hann þarf annaðhvort að fara sjálfur með vöruna, eða láta annan annast aölu á henni; því engum dettur í hug, að senda vöruna til kaupandans og láta hann vera alveg einráðan um, hvað hann vill borga fyrir hana. Þar sem markaður er fyrir ísl. vörur, eru ætíð fleiri en einn kaupandi, og sá, sem er á staðnum, selur þá þeim, sem bezt býður. Það er eins ástatt með kaupmenn erlendis, eins og á íslandi, að allir vilja ná svo góðum kaupum, sem þeir geta, og dugar því ekki, að láta kaupanda vera einan um að verðleggja vöruna, því við það mundi hæglega tapast miklu meira en umboðslaunum umboðsmannsins nemur. Hann á líka á hvaða tíma sem er að vera kunnugur markaðsverðinu á vörunum, og því geta útvegað hæsta verð fyrir þær. Það er hans hagur, eins og eigandans, að ná sem hæstu verði fyrir vöruna. Því hærra sem hún selst, því meiri verða umboðslaun hans. Að mikið ólag sé á íslenzku verzluninni að því leyti, að lands- menn geti fengið öllu betri kaup, en nú á sér stað, fæ ég eigi séð. Þó getur auðvitað eitt og annað staðið til bóta. Vörur eru yfirleitt seldar ódýrar í búðum á Islandi, þó það séu útlendar vörur, en þær eru seldar í búðum erlendis; samkepnin er orðin svo mikil, að kaup- menn geta ekki lagt nema tiltölulega lítið á vöruna, og er kaup- menska því sem atvinna alls ekki eftirsóknarverðari en hver önnur atvinnugrein. Það er landbúnaður og sjávarútvegur, sem hljóta að verða aðal-atvinnugreinar á íslandi, og stendur þar mikið til bóta, og miklar framfarir frá því, sem nú er, geta átt sér stað, ekki sízt að því, er landbúnaðinn snertir. Það hefir ýmsum komið til hugar, að heppilegt mundi vera, að í Reykjavík væru kaupmenn með miklar vörubirgðir, sem þaðan gætu birgt allar verzlanir landsins. Hvort það mundi verða heppilegra fyrir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.