Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1921, Side 54

Eimreiðin - 01.05.1921, Side 54
182 GUÐMUNDUR BISKUP GÓÐI (EIMREIÐIN þegar um slíkt guðlast var að ræða, þá hefir honum þótt nóg um það, hve langt Guðmundur gekk í þessu1). Jafn- vel prestar gátu ekki setið á sér að stinga sneiðum að Guðmundi út af þessu beina dálæti hans. Einu sinni ætl- aði Guðmundur að gefa Sigurði Ormssyni á Svínafelli af beini heilags Jóns Hólabiskups. Þá var þar síra Steinn nokkur, er ræddi um »að honum þótti eigi vel litt beinið Jóns biskups, og kvað sér það þykja eigi heilaglegto. — En Guðmundur var öílugur talsmaður beinsins og svo fór, að með áminningum Guðmundar og fyrir verðleika heilags Jóns varð síra Steinn að falla frá villu sinni og fékk maklegan kinnroða fyrir ótrú sína2). Mun Guðmund- ur hafa aukið fjarskalega trú manna á helga dóma víðs- vegar um landið, því að hann hafði þá jafnan með sér, og hafði sem sverð og skjöld fyrir sér, er hann framdi hin dásamlegustu verk sín, einkum er hann fékst við drauga og forynjur. Líkt var á komið með vígslur Guðmundar og yfirsöngva. Þetta var líka tíðkað af fleirum í kaþólska siðnum. En þar fór Guðmundur svo langt fram úr öllum, að enginn íslendingur fyr né síðar hefir þar komist með tærnar, sem hann hafði hælana, og má svo segja, að allir aðrir hverfi fyrir honum. Hann vígði alt, sem vígslu varð á komið, en einkum voru þó vinsælar vígslur hans á brunnum og fuglabjörgum. Allir þekkja orðin: »Hættu að vígja Gvend- ur biskup, einhversstaðar verða vondir að vera«. Það lá við, að varla væri orðinn nokkur griðastaður, nokkurt Heiðnaberg, fyrir illa ára, eftir ferðir Guðmundar, og var ekki kyn, þótt alþýðu þætti hann góður gestur. Lang al- gengastar voru vatnsvígslur hans. Jafnvel enn þann dag í dag drekka Reykvíkingar vatn, sem vígt er af hinum blessaða Guðmundi biskupi. Vatn hans gekk alment undir nafninu biskupsvatn, og þótti nauðsjmleg eign á hverju heimili svo að segja. Það var líka til margra hluta nyt- samlegt. Það var notað sem lyf, bæði innvortis og út- vortis, og þótti gefast ágætlega, og það jafnt fyrir menn og skepnur. Það bráðdrap eld í húsum, ef því var skvett 1) Bisk. I, 413. 2) Bisk. I, 408.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.