Eimreiðin - 01.05.1921, Síða 95
EIMREIÐIXl
HEIMILISIÐNAÐUR
223
þeim ber aö vinna að. Eg skal nefna eitt eða tvö dæmi
til skýringar. Vélaspuni fer fram á alt annan hátt en
þegar spunnið er á rokk. Nú fullyrða þingeyskir tóskapar-
menn að gera megi einfaldar spunavélar, sem nota megi
á hverju heimili. Mér þykir sennilegt að þetta mætti tak-
ast. f*að þyrfti að athugast vandlega hvort þetta svaraði
kostnaði og síðan að fá slíkar vélar smíðaðar svo vel og
viturlega, að þær yrðu jafnsnjallar sauma- og prjónavél-
um. En þess gerist sjaldan þörf að smíða þurfi nýjar
vélar. Til saumaskapar þekkjast engin fullkomnari áhöld
en saumavélarnar, sem allir þekkja. Hvernig stendur á
því að vér kaupum ógrynnin öll af tilbúnum saumuðum
fatnaði? f*etta er rannsóknarefni fyrir heimilisiðnaðarfélagið.
Prjónles er ágætt í margskonar klæðnað. Alt er það unnið
í prjónavélum, sem heimilum er ekki ofvaxið að eignast.
Vér höfum áreiðanlega nógu margar höndur til þess að
prjóna í góðum vélum alt sem prjóna þarf á þessu landi.
Félagið þarf að úlvega ágætar fyrirmyndir at peisum,
treyjum, prjónahúfum, sokkaplökkum o. þvíl., lána þær
út með nákvæmri forsögn, kenna þeim prjónaskap sem
ætla að stunda hann og leiðbeina í kaupum á hentugum
vélum. Við sauma og prjónaskap kæmi auðvitað ekki
annað til mála, en að hver sauma eða prjónastúlka gerði
að eins einn hlut eða örfáa til þess að ná sem mestri
vinnuleikni, því vinnan verður að ganga afar fljótt og vera
ódýr ef keppa skal við útlöndin.
Eg kem þá að þeim atriðum sem ekki er hvað minst
um vert, útvegun efnis og sölu á varningi sem unninn er
heima. Með samvinnu og aðstoð kaupfélaganna ætti það
ekki að vera ókleift að fá alt útlent efni, gott og hentugt,
með heildsöluverði. Heimilisiðnaðarfélögin yrðu þar sjálf-
sagður milliliður.
Eg hef áður sagt, að heimilisiðnaðurinn ætti á sínum
sviðum að geta keppt við hvern sem er í verði, vörugæð-
um og útliti. Pó er þetta ekki nóg til þess að tryggja
söluna. Til þess þarf bæði að hafa vöruna á boðstólum
á réttum stöðum og réttum tímurn, vekja athygli almenn-
ings á henni o. fl. Auk þess þarf nákvæma verslunarþekk-