Eimreiðin - 01.05.1921, Page 128
256
RITSJÁ
[EIMRKIÐIN
t bókinni eru nokkrar myndir af helstu mönnum, sem þar er
frá skýrt, og meðal annars 3 myndir af b}rltingar-foringjanum
Lenin. M. J.
Gaðmandur Hannesson: SAMRÆÐISSJÚKDÓMAR og varnir
gegn þeim. — Gefið út að tilhlutun Stjórnarráðs íslands 1920.
Litill og líklega, því miður verður maður að segja, þarfur
bæklingur, úr því að það opinbera hefir talið nauðsynlegt að
koma honum út. Er hér í stuttu, en skýru máli og hispurslausu
sagt frá orsökum samræðissjúkdóma, gangi þeirra, lækningu og
vörnum gegn þeim.
Bæklingur þessi er, eins og annað, sem prófessor Guðmundur
Hannesson ritar, frábærlega ljós og skilmerkilegur, svo að hvergi
verður séð að betur megi fara. Má víst óhætt telja höf. hans
einhvern fremsta mann vorn í þeim efnum. Hér sýnist honum
ekki hafa verið valið efni, sem geti talist af betri endanum, til
þess að skrifa um svo að læsilegt sé, en þó má segja, að bæk-
lingurinn sé beinlinis skemtilegur afiestrar vegna stílsins. Hann
gerir úr viðureign sýklanna og likamans virkilega stór-orrustu,
með spennandi sókn og vörn — en þó án þess að útþynna efnið
á nokkurn hátt eða gera það reyfarakent og gutlaralegt. Er slíkt
ekki annara meðfæri en afbragðs rithöfunda.
Eins og nærri má geta er þetta þó ekki skemtibók, heldur þörf
leiðbeining f}Trir þá, sem helst má ætla að séu í hættu fyrir
þessum sjúkdómum. Ættu farmenn vorir ekki að firtast af því,
þólt þeir sé sérstaklega til nefndir, heldur nota bæklinginn með
alvöru. M. J.
Ben. Gröndal: GAMANSÖGUR. Heljarslóðarorrusta og Þórðar
saga Geirmundarsonar eru að koma út saman í nýrri, snyrti-
legri útgáfu, og mun mörgum þykja fengur í. — Vér getum ekki
á oss setið að birta lesendum Eimreiðarinnar fregnina. —
Bókarinnar verður nánar getið í næsta hefti.