Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1920, Síða 147
Gó'ð bók handa kennurum
43
ofan í vök; má þá nota til þess bakkann á sjálfskeiðing, lykil,
fimmeyring, eða einhvern harðan hlut, sem menn kunna að
hafa á sjer, á meðan menn hefja sig upp, og er ein mynd
af því í bókinni. Enn ekkert af þessu geta aðrir en þeir,
sem ofurlítið kunna að synda.
íslendingar, bæði piltar og stúlkur, ættu að læra að
synda. í Reykjavík og öðrum kaupstöðum og verslunarstöð-
um landsins ætti sund að vera skyldunámsgrein.
Ing-eborg- Simesen: Natalie Zahle. (Det Setiön-
bergske Forlag). Kmh. 1919. 128 bls , 2 kr. 50 a. Þetta
er óvenju góð bók og fræðandi. Hún er um sömu konuna,
sem Ingibjörg Ólafsson ritaði um í Ársritinu í fyrra. Vitur
maður, prófessor Edvard Lehmann telur N. Zahle, Grundtvig
og Madvig hina mestu uppeldisfræðinga í Danmörku.
í bók þessari er í fám orðum sögð ytri æfi Natalie
Zahle, en aðallega er hún lýsing á því, hver maður hún var.
Allir kennarar á íslandi ættu að lesa bók þessa; væri
hægt að framkvæma það, ef hún væri notuð í Kennaraskól-
anum í Reykjavík fyrir lesbók í dönsku. Það mætti lesa
hana í staðinn fyrir aðra hvora þá lesbók, sem er notuð þar
í öðrum eða þriðja bekk, en helst ætti þó að lesa hana í
þriðja bekk. Einnig mundi vel til fallið að hún væri lesin í
efsta bekk í Kvennaskólanum. Það gæti ekki hjá því farið,
að það hefði góð áhrif á nemendurna að lesa bók þessa; af