Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1959, Blaðsíða 1
ÁRSRIT
Kæktunarfélags Norðurlands
RITSTJÓRI: ÓLAFUR JÓNSSON
56. ÁRGANGUR
1. HEFTI
1959
ÓLAFUR JÓNSSON:
Afkvæmarannsókn á búfjárræktarstöð S. N. E.
að Lundi við Akureyri 1957-58
Bull Progeny Test at the Breeding Station S. N. E.
at Lundur near Akureyri in 1951—58.
Erfðir og afbrigði.
Langt er síðan vitað var að eiginleikar ganga að erfðurn
og tekið var að nota þessa vitneskju í hagnýtri búfjárrækt.
Lengi var, við val kynbótagripa, einblínt á útlitið eða af-
urðir þeirra, ef mælanlegar voru, og urðu þannig til sérstök
útlitseinkenni, er þóttu bera vott um vissa afurðahæfni, svo
sem mjólkureinkenni. Reynslan hefur þó sýnt, að útlitið
getur oft verið mjög villandi vegna þess, að það er að
nokkru leyti áunnið gegnum aðbúð, uppeldi og notkun, og
að útlitseinkennin eru títt fremur afleiðing notkunarinnar
en einkenni sérstakrar nothæfni.
Þá hefur eðlilega, við val kynbótadýra, upphafið komið
mjög til greina, þ. e. vitneskjan um ætt og uppruna, því lík-
l
LAN DitiuiiÁSÁMi
2299i,U
ISLANDS