Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1959, Page 65

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1959, Page 65
67 að vísu vegna staðhátta hlutu að vera nokkuð mismunandi bæði að stærð og meðlimafjölda, og þótt ekki væri annað eftir af hinu gamla Ræktunarfélagi Norðurlands en Gróðr- arstöðin á Akureyri, vildi hvorki Búnaðarþing eða Búnað- arfélag íslands viðurkenna öll þessi Búnaðarsambönd, sem sjálfstæða aðila með rétti til sérstyrks eða sérrétti til kosn- inga á búnaðarþingsfulltrúa. Þannig var Búnaðarsambönd- unum í Norður- og Suður-Þingeyjarsýslum veittur sameig- inlegur rekstrarstyrkur og ákvæði sett um, að þessi sambönd skyld í sameining kjósa fultrúa á Búnaðarþing. Þessi afstaða Búnaðarfélags íslands til hinna minni og fámennari Búnaðarsambanda lýsir furðulegu skilningsleysi og jafnvel óvild í þeirra garð, því það er engu líkara, en að stjórn Búnaðarfélag íslands og Búnaðarþing hafi viljað launa umbótaviðleitni þeirra og sjálfstæðiskennd, með því að neita að viðurkenna þau sem fullkomlega sjálfstæða aðila gagnvart Búnaðarþingi, því það þurfti ekki að kosta meiri fjárframlög af hálfu þess opinbera, þótt hverju sambandi væri veitt ákveðin upphæð á Búnaðarþingi til reksturskostn- aðar og ekki fjölgaði það fulltrúum á Búnaðarþingi, þótt tvö Búnaðarsambönd, sem höfðu rétt til að kjósa tvo full- trúa, kysu þá hvert fyrir sig, en þó þeir væru kosnir sam- eiginlega, enda varð val fulltrúanna ávallt það sama hverri aðferðinni sem beitt var, en einmenningskjörið bæði lient- ugra og margfalt ódýrara. Það tók B. S. N. Þ. 15 ára þrot- lausa baráttu að fá viðurkenningu á rétti til beinna fjár- framlaga frá Búnaðarþingi til reksturskostnaðar og nýmæla í búnaði. Má tilfæra mörg dæmi þess, að skilningsleysi Bún- aðarþings og tregða Búnaðarfélags íslands með að rétta B. S. N. Þ. örfandi hönd og fjárhagslegan stuðning, kyrkti í fæðingu ýmsar góðar framfarahugmyndir Sambandsins. Og enginn veit eða getur um það spáð, hversu mörg ár það kann að taka enn, að fá fullan og óskoraðan rétt fyrir B. S. N. Þ. til sérkosningar á Búnaðarþingsfulltrúa, því eins og stendur er þar aðeins um heimild að ræða, sem stendur 5*

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.