Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1959, Blaðsíða 75
77
að ná til alls almennings. En þrátt fyrir það hefur Sam-
bandið ekki vanrækt aðrar greinar landbúnaðarins, um það
ber skýrslan um gjöld Sambandsins á þessu tímabili iiruggt
vitni. En það sem máli skiptir og flestir munu sammála um,
er að B. S. N. Þ. hefur verið driffjöður og lyftistöng flestra
hinna stærri framkvæmda á sviði landbúnaðar í þessu hér-
aði sl. 25 ár, og að það með hvatningum, leiðbeiningum og
styrkjum, hefur átt því láni að fagna að geta lagt horn-
steina að mörgum nýjum framkvæmdum á sviði landbúnað-
ar á þessu merka tímabili.
Með þessari stuttu frásögn um stofnun og starfsemi Bún-
aðarsambands Norður-Þingeyinga, sem er skráð fyrir marg-
ítrekaða áskorun frá Helga Kristjánssyni í Leirhöfn, er að-
allega tvennt haft í huga. í fyrsta lagi að forða frá gleymsku
litlum en merkum þætti af búnaðarsögu Norður-Þingeyinga
og í öðru lagi að sýna hverju Grettistaki fámennur en sam-
stilltur hópur bænda getur lyft.
Svo þakka ég samstarfsmönnum mínum í stjórn Sam-
bandsins fyrir ágæta samvinnu í málum Sambandsins á und-
angengnum árum. Eg þakka öllum starfsmönnum fyrr og
síðar fyrir mikið og óeigingjarnt starf. Eg þakka búnaðar-
félagsformönnum og fulltrúum aðalfunda fyrir áhuga og
festu í málum Sambandsins. Eg þakka öllum meðlimum
Sambandsins þann félagsþroska og örlæti, er þeir hafa sýnt
Sambandinu frá því það hóf göngu sína og ég þakka öllum
innanhéraðs og utan, er á einn eða annan hátt hafa greitt.
götu B. S. N. Þ. á þessu 25 ára tímabili.
Svo óska ég B. S. N. Þ. allrar blessunar í starfi og vona,
að því megi auðnast á næstu áratugum að leggja hornsteina
að mörgum nýmælum á sviði Norður-Þingeysks landbún-
aðar.
Þverá, 18. maí 1952.
Benedikt Kristjánsson.