Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1959, Side 5
S. N. E. í að koma á fót nautastöð að Grísabóli við Akur-
eyri og hefja tæknifrjóvgun nautgripa. Sæðingastöðin hefur
frá upphafi til þessa dags búið við þröngt og óhentugt hús-
næði; en þrátt fyrir það leyst af höndum mjög gott starf og
með ágætum árangri. Bændur kunnu þegar í upphafi mjög
vel að meta hagræðið við þessa nýbreytni og þótt öðru
hvoru örli á því, að einstaka bændur haldi það hagkvæmara
að spila upp á eigin spýtur með vafasama nautkálfa, þá eru
það einangruð fyrirbæri, sem smám saman munu hverfa.
Það tók að sjálfsögðu nokkur ár að koma fastri skipan á
hina nýju tilhögun og má segja, að hún sé varla fullmótuð
enn. Árið 1947, þegar á öðru ári starfseminnar, er talið að
1500 kýr hafi verið sæddar hjá S. N. E., en um 2500 árið
eftir. Kostnaðurinn reyndist þó svo mikill, að horfið var að
því að þrengja starfssvæðið og draga úr sæðingunum, og
1949 eru taldar 2000 kýr, er fengu kálf við sæðingu. Síðan
hefur þetta verið þannig:
Fjöldi sæðinga og kelfdra kúa við sæðingu hjá S. N. E.
Number of Inseminations an Pregnant Cows frorn Inseminations
Performed by S. N. E.
S;i'ð. Kýr teknar til Fengti Fengu kálf Fengu kálf Sæð. á
Ar: alls meðferðar kálf við 1. sæð. alls % kelfda kú
Insemi- Cows Cows Pregnant Pregnant Insem.per
Year nations treated Pregn. lst insem. insem. % Pregn.Cow
1950 2341 1928 82.4
1951 .... c.2500 1945 1739 89.4 c. 1.44
1952 .... c.2300 c. 1800 1528 70.1% c. 84.9 c. 1.57
1953 .... 2247 1733 1531 70.2% 88.3 1.47
1954 .... 2653 2016 1795 70.7% 89.0 1.48
1955 .... 2429 1913 1736 72.7% 90.7 1.40
1956 . ... 3225 2423 2189 71.1% 90.3 1.49
1957 ... . 4029 2970 2745 70.6% 92.6 1.47
1958 .... 4168 3130 2933 69.4% 93.7 1.42