Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1959, Side 18
18
Þetta fóður nægir því í hæsta lagi til viðhalds, vaxtar og
4.5 kg af mjólk með 4% fitu á dag og við þetta var kjarn-
fóðurgjöfin miðuð.
Þar sem talið var, að í heyfóðrinu væri nægileg meltanleg
eggjahvíta til viðhalds, vaxtar og til þess að kvígurnar gætu
gefið 5 kg af mjólk, en fóðurblanda KEA var þá tiltölulega
auðug af eggjahvítu, var gerð sérstök fóðurblanda fyrir til-
raunina og gerð hennar miðuð við, að í fóðureininguna
færi eitt kg með um 160 gr af meltanlegri eggjahvítu. Gerð
fóðurblöndunnar var ákveðin þannig:
Fóðurblanda notuð veturinn 1957/58.
Fodder mixture used during the winter of 1957/58.
% F.E. Fodder unit Meltanl. ehv. í g Digest. Protain in gr.
Síldarmjöl Herring Meal 10 0.138 58.6
Fiskimjöl Fish Meal 5 0.050 12.6
Sojamjöl Soya Flour 10 0.124 38.4
Hveitiklíð Wheat Husk 15 0.117 14.5
Maísmjöl Maize Flour 30 0.318 19.7
Byggmjöl Barley Flour 28 0.280 18.2
Fóðursalt Mineral Mixture 2
Samtals Total 100 1.027 162.0
Ekki reyndist kleyft að hafa þessa blöndu eins allan tím-
ann. Fyrst varð að nota „Feed mix“ í stað byggmjöls, en
síðar mais og rúgmjöl, því byggmjölið fékkst ekki fyrr en
um miðjan janúar, og mun blandan þá hafa orðið nálægt
því, er upphaflega var til ætlazt. Sojamjölið mun þó hafa
gengið til þurrðar og síldarmjöl og fiskimjöl komið í þess
stað, en í meginatriðum mun fóðurgildi og eggjahvíta
blöndunnar hafa haldizt samkvæmt upphaflegri forskrift.