Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1959, Page 20

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1959, Page 20
20 látnar út fengu þær ekkert kjarnfóður. Flestar þeirra voru vel haldnar með það, en tvær þær beztu þó naumlega, önnur í 13 hin í 10 kg. Þær hættu þó að vilja mat eftir að þær komu út en græddu sig þó heldur fyrst í stað, og svo var það með flestar kvígurnar. Sú aukning hélzt þó ekki lengi og mun orsökin mest sú, að beitin var ekki nógu jöfn. Afurðaaukningin lá nær einvörðungu í því, að mjólkurfitan jókst verulega. Kvígunum var gefið dálítið þurrhey með beitinni fyrst etfir að þær fóru út, en ekki átu þær nema lítið af því. Mjólkin var mæld, svo sem fyrr var sagt, úr hverri kvígu í 304 daga, svo framarlega sem hún ekki varð geld áður, en að því voru ekki mikil brögð. Þó voru nokkrar að verða geldar er mælingum lauk, en aðrar enn í nokkurri nyt. Árangur rannsóknarinnar. Á töflu þeirri, er fylgir hér ineð er dreginn saman megin árangur þessarar afkvæmarannsóknar og skal hann nú rædd- ur nánar ('Tafla 1).* Fyrstu 4 dálkar töflunnar, númer, fæð- ingardag, burðardag og aldur við burð, þarf ekki að skýra frekar en orðið er. Með fimmta dálkinum, sem heitir mjólk mest á dag, hefst hin eiginlega rannsókn og samanburður á kvígunum, því þótt í þessum dálk sé aðeins greint frá hæstu dagsnyt, sem kvígurnar komast í eftir burð, hefur reynslan sýnt, að milli þessa og ársnytarinnar eru ákveðin tengsl, svo að af hæstu dagsnyt má ráða, ef allt er með felldu, fóðrun, hirðing og heilbrigði, hve mikil ársnytin muni verða. Má vera, að þetta sé betri mælikvarði á mjólk- urhæfni kúnna en ársnytin, sem er mun meira háð utanað- komandi truflunum, að sama skapi og það tekur lengri tíma að fá hana ákvarðaða. Virðist svo sem mjólkin hjá kvígun- um í röska 300 daga hafi orðið sem næst þannig: Hæsta dags- nyt x 200. Þetta er þó nokkuð mismunandi en þó þannig, að * (Aðaltafla I er á bls. 22-25).

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.