Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1959, Side 28
30
mikla mjólk með 4% fitu kvígurnar hafa gefið í innistöðu,
og hve mikill hluti hún er af mjólkinni á öllu tilraunaskeið-
inu. Þegar fóður til mjólkui er margfaldað með 2.5 á að fást
tala, er nálgast kg mjólkur í innistöðu. Síðasti dálkurinn
sýnir hve mikill hluti vetrarfóðursins hefur gengið til
mjólkur.
Samanburður á fóðurþörf systrahópanna leiðir að sjálf-
sögðu í ljós, að Ægisdætur hafa þarfnazt nokkru meira fóð-
urs, í samræmi við það, sem þær hafa mjólkað meira yfir
gjafatímann, því eigi er þess að vænta, að mjólk eða aðrar
búfjárafurðir fáist fyrir ekki neitt. Það er athyglisvert, að
vetrarmjólkin er nálægt % hlutar af mjólkinni á öllu rann-
sóknarskeiðinu, en beitartíminn er ekki heldur nema % af
því, og á þennan % hluta mjólkurinnar kemur þriðjungur-
inn af mismuninum á systrahópunum.
Svo sem vænta mátti, verður hlutur vetrarfóðursins til
mjólkur því meiri, sem þær hafa mjólkað betur, en burðar-
tíminn hefur einnig nokkur áhrif á það. Vallardætur hafa
notað um 45% af fóðrinu til mjólkur beinlínis, en Ægis-
dætur um 50% og bera þó að meðaltali nokkru síðar.
Afurðirnar voru að sjálfsögðu meginatriði samanburðar-
ins, en fleira kom þó til álita, svo sem bygging, júgurlag og
mjaltir. Að öllu samanlögðu má telja, að bygging Vallar-
dætra hafi verið betri en Ægisdætra, er sumar voru nokkuð
krangalegar eins og nautið, með nokkuð hallandi og þak-
laga malir, en þetta byggingarlag mun nokkuð algengt á af-
komendum Kols. Júgurstæðið var heldur lítið á mörgum
kvígum í báðum flokkum og spenar oft of nástæðir. Þó hafa
líklega Ægisdætur haft heldur betra júgurlag en Vallardæt-
ur, en ekki verður sagt, að nein örugg tengsl hafi komið í
Ijós milli júgurstærðar eða júgurgerðar og mjólkur.
Kvígumar voru mjólkaðar með mjaltavélum og var tvisv-
ar gerð athugun á því, hve langur tími fór í að mjólka þær.
Var athugun þesi gerð í bæði mál og gert af meðaltal. Tím-
inn var tekinn frá því vélin var sett á og þar til júgrið hætti